Þá er komið að næstu tíbbagöngu deildarinnar! Þriðjudaginn 19. júní næstkomandi kl 19:30 ætlum við í lausagöngu rétt hjá Sólheimakoti (göngum frá bílastæðinu sem er strax á hægri hönd eftir að beygt er inn veginn sem merktur er Sólheimakoti.) Við ætlum að hittast við Olís hjá Rauðavatni líkt og síðast og keyra saman þaðan kl 19:30. Ég verð á grárri Toyota Corolla og síminn minn er 6947415 ef einhver lendir í vandræðum að rata. Þetta verður vonandi fínasta kvöldganga á svæði þar sem okkur er óhætt að leyfa tíbbunum okkar að hlaupa lausum og leika sér. Vonumst til að sjá sem flesta! Sumarkveðja, Stjórnin Kæru tíbbaeigendur!
Nú fer að styttast í næstu sýningu Hundaræktarfélagsins og í þetta sinn er komið að deildinni okkar að aðstoða við sýninguna. Annars vegar þarf aðstoð við uppsetningu á fimmtudeginum 31. maí og við að ganga frá á sunnudegi 3. júní. Hins vegar er það miðasala í aðalinngang og varsla/ruslatýnsla á laugardegi og sunnudegi. Hver vakt er einungis klukkutími og við hvetjum þá sem mögulega geta að bjóða fram krafta sína í þágu deildarinnar okkar, það er nóg af störfum í boði! Endilega hafið samband, hægt er að senda póst á helgasmelga@gmail.com eða hringið í Auði í síma 557-5622 eftir kl 13 á daginn! Með kærri kveðju, Stjórnin Vekjum athygli á því að Ársskýrsla stjórnar Tíbet Spanieldeildar fyrir starfsárið 2011-2012 er komin á síðuna.
Hvetjum félagsmenn að kynna sér innihald hennar. Stjórnin
Næsta ganga Tíbet Spaniel deildarinnar verður sunnudaginn 15. apríl næstkomandi hjá Geithálsi. Við ætlum að hittast á planinu við Olís hjá Rauðavatni og keyra saman þaðan kl 13:00. (Ef einhver lendir í vandræðum með að rata verður hægt að ná í mig í síma 6947415). Það verður lausaganga í þetta sinn, svo hundarnir fá að hlaupa og leika sér :) Vonumst til að sjá sem flesta!
Kv. stjórn Tíbet Spaniel deildarinnar. |
VelkominVelkomin á heimasíðu Tíbet Spanieldeildarinnar. Hér finnurðu allskyns fróðleik og fréttir af tegundinni. Færslur
December 2023
Flokkar
All
|