Fundargerð Tibet Spanieldeildar HRFÍ.
Fundur haldinn hjá Ingibjörgu Blomsterberg Fífudal 9, Reykjanesbæ.
Þriðjudaginn 14. apríl 2015
Kl. 19.30
1. fundur frá ársfundi.
Mættar voru: Auður Valgeirsdóttir, Kristjana Ólafsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Ingibjörg Ásta Blomsterberg,
Guðrún Helga Harðardóttir boðaði forföll,
Steinunn Þórisdóttir sat einnig fundinn.
Farið var yfir fundargerð frá ársfundi Tibet Spanieldeildar HRFÍ sem haldinn var 7. apríl 2015.
Stjórnin skipti með sér verkum: Formaður Auður Valgeirsdóttir, gjaldkeri Kristjana Ólafsdóttir, ritari Kolbrún Jónsdóttir, Guðrun Helga Harðardóttir meðstjórnandi og Ingibjörg Ásta Blomsterberg meðstjórandi
Steinunn Þórisdóttir, formaður skemmtinefndar og félagsstarfs deildarinnar.
Augnskoðanir : Sjö hundar voru augnskoðaðir í febrúar/mars s.l. og reyndust allir nema einn án arfgengra sjúkdóma, einn greindist með viðsnúin augnhár (Distichiasis) í báðum augum. Má rækta á móti fríum.
Sýningardómar: Farið var yfir dóma af sýningu HRFÍ í september 2014 og febrúar 2015.
Bréf til HRFÍ: Auður Valgeirsdóttir, las upp tillögu að bréf til HRFÍ um ósk um undaþágu að lækkun á lágmarksaldri Tíbet spaniel tíka til pörunnar úr 24 mánaða í 20 mánaða, sem samþykkt var á ársfundi deilarinnar 7. apríl 2015 og ákveðið að stjórn skrifaði bréf þess efnis á fyrsta stjórnarfundi. Farið var yfir bréfið og var ákveðið með nokkrum breytingum að senda það til HRFÍ.
Fulltrúarásfundur: Auður Valgeirsdóttir og Kristjana Ólafsdóttir, sátu fulltrúaráðsfund HRFÍ sem var haldinn 31. mars 2015.
Farið var yfir það helsta sem rætt var á fundinum. Þar kom m.a. fram að kynningarfundur HRFÍ með ræktnarstjórnum, þar sem farið verður yfir hvað ræktunarstjórnir standa fyrir, mun frestast einhvað að sögn formanns HRFÍ (sjá nánar fundargerð á síðu HRFÍ)
Önnur mál: Rætt var um átakanleg dauðsföll á tveimur hvolpum í deildinni okkar.
Einnig var rætt að eflaust þurfa allar deildir að skaffa mannskap vegna næstu sýningar, sem verður tvöföld sýning og haldin í Reiðhöllininni í Víðidal hvítasunnuhelgina 23.-25. maí n.k.
Þar sem deildin okkar verður 20 ára í nóvember var rætt um að gaman væri gera einhvað skemmtilegt í sambandi við afmælið og sýningu HRFÍ í nóvember. Ýmsar skemmtilegar hugmyndir komu fram. Rætt var um að halda jafnvel "open show" þar sem of dýrt væri fyrir okkur að halda meistarastigs sýningu með erlendum dómara. Rætt var að fá þá dómaranema HRFÍ sem eru að læra um okkar tegund, til að dæma þá sýningu. Skráningargjöld af þeirri sýningu myndu þá renna til deilarinnar. Steinunn Þórisdóttir mun vera okkur til halds og trausts í sambandi við það.
Næsti fundur stjórnar var ákveðið að yrði haldinn 11. maí n.k.
Fundi slitið kl. 22.00