Tíbet Spanieldeild HRFÍ
  • Fréttir
  • Myndir
    • Deildarviðburðir >
      • Hvolpapartý apríl 2013
    • Garðheimar >
      • Garðheimar 2012
      • Garðheimar 2013
    • Aðsendar myndir
    • Myndir úr göngum >
      • Tíbbaganga í apríl
      • Tíbbaganga í júní
      • Tíbbaganga júlí
      • Tíbbaganga júní 2013
      • Tibbaganga agust 2013
    • Myndir af sýningum >
      • Ágústsýning 2012
      • Febrúarsýning 2013
      • Reykjavík Winner Show 2013
      • Septembersyning 2013
      • Nóvembersýning 2013
      • Febrúarsýning 2014
      • Reykjavík Winner 2014
      • 45 ára afmælissýning CACIB
  • Ræktun
    • Hvolpar
    • Ræktunarmarkmið
    • Ræktendur
    • DNA próf
  • Deildin
    • Stjórnin
    • Deildarfréttir >
      • Deildarfréttir 2012
      • Deildarfréttir 2013
      • Deildarfréttir 2014
    • Á döfinni
    • Fundargerðir >
      • Fundargerðir 2012 >
        • Fundargerð 16.04.12
        • Fundargerð 04.09.12
        • Fundargerð 20.11.12
      • Fundargerðir 2013 >
        • Fundargerð 14.03.13
        • Fundargerð Ársfundar 2013
        • Fundargerð 16.04.13
        • Fundargerð 18.06.13
        • Fundargerð 17.09.13
      • Fundargerðir 2014 >
        • Fundargerð 14.01.14
        • Fundargerð 12.03.14
      • Fundargerðir 2015 >
        • Fundargerð 08.01.15
        • Fundargerð 24.02.15
        • Fundargerð Ársfundar 2015
        • Fundargerð 14.04.15
        • Fundargerð 09.06.15
      • Fundargerðir 2016 >
        • Fundargerð 02.02.16
        • Fundargerð Ársfundar 2016
        • Fundargerð 08.04.16
        • Fundargerð 09.05.16
        • Fundargerð 21.06.16
        • Fundargerð 24.08.16
        • Fundargerð 03.11.16
      • Fundargerðir 2017 >
        • Fundargerð 18.01.17
        • Fundargerð ársfundar 2017
        • Fundargerð 26.04.17
        • Fundargerð 11.11.17
      • Fundargerðir 2018 >
        • Fundargerð 14.02.18
    • Ársskýrslur >
      • Ársskýrsla stjórnar 2011-2012
      • Ársskýrsla stjórnar 2012-2013
      • Ársskýrsla stjónar 2013-2014
      • Ársskýrsla stjórnar 2015-2016
      • Ársskýrsla stjórnar 2014-2015
      • Ársskýrsla stjórnar 2016-2017
      • Ársskýrsla stjórnar 2017-2018
      • Ársskýrsla stjórnar 2018-2019
      • Ársskýrsla stjórnar 2019-2020
      • Ársskýrsla stjórnar 2020-2021
      • Ársskýrsla stjórnar 2021-2022
  • Tíbet Spaniel
    • Um tegundina
    • Saga tegundarinnar
    • Útlit
  • Sýningar
    • Sýningarfréttir
    • Sýningardagatal
    • Stigahæsti hundur
    • Íslenskir og Alþjóðlegir meistarar
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Myndir
    • Deildarviðburðir >
      • Hvolpapartý apríl 2013
    • Garðheimar >
      • Garðheimar 2012
      • Garðheimar 2013
    • Aðsendar myndir
    • Myndir úr göngum >
      • Tíbbaganga í apríl
      • Tíbbaganga í júní
      • Tíbbaganga júlí
      • Tíbbaganga júní 2013
      • Tibbaganga agust 2013
    • Myndir af sýningum >
      • Ágústsýning 2012
      • Febrúarsýning 2013
      • Reykjavík Winner Show 2013
      • Septembersyning 2013
      • Nóvembersýning 2013
      • Febrúarsýning 2014
      • Reykjavík Winner 2014
      • 45 ára afmælissýning CACIB
  • Ræktun
    • Hvolpar
    • Ræktunarmarkmið
    • Ræktendur
    • DNA próf
  • Deildin
    • Stjórnin
    • Deildarfréttir >
      • Deildarfréttir 2012
      • Deildarfréttir 2013
      • Deildarfréttir 2014
    • Á döfinni
    • Fundargerðir >
      • Fundargerðir 2012 >
        • Fundargerð 16.04.12
        • Fundargerð 04.09.12
        • Fundargerð 20.11.12
      • Fundargerðir 2013 >
        • Fundargerð 14.03.13
        • Fundargerð Ársfundar 2013
        • Fundargerð 16.04.13
        • Fundargerð 18.06.13
        • Fundargerð 17.09.13
      • Fundargerðir 2014 >
        • Fundargerð 14.01.14
        • Fundargerð 12.03.14
      • Fundargerðir 2015 >
        • Fundargerð 08.01.15
        • Fundargerð 24.02.15
        • Fundargerð Ársfundar 2015
        • Fundargerð 14.04.15
        • Fundargerð 09.06.15
      • Fundargerðir 2016 >
        • Fundargerð 02.02.16
        • Fundargerð Ársfundar 2016
        • Fundargerð 08.04.16
        • Fundargerð 09.05.16
        • Fundargerð 21.06.16
        • Fundargerð 24.08.16
        • Fundargerð 03.11.16
      • Fundargerðir 2017 >
        • Fundargerð 18.01.17
        • Fundargerð ársfundar 2017
        • Fundargerð 26.04.17
        • Fundargerð 11.11.17
      • Fundargerðir 2018 >
        • Fundargerð 14.02.18
    • Ársskýrslur >
      • Ársskýrsla stjórnar 2011-2012
      • Ársskýrsla stjórnar 2012-2013
      • Ársskýrsla stjónar 2013-2014
      • Ársskýrsla stjórnar 2015-2016
      • Ársskýrsla stjórnar 2014-2015
      • Ársskýrsla stjórnar 2016-2017
      • Ársskýrsla stjórnar 2017-2018
      • Ársskýrsla stjórnar 2018-2019
      • Ársskýrsla stjórnar 2019-2020
      • Ársskýrsla stjórnar 2020-2021
      • Ársskýrsla stjórnar 2021-2022
  • Tíbet Spaniel
    • Um tegundina
    • Saga tegundarinnar
    • Útlit
  • Sýningar
    • Sýningarfréttir
    • Sýningardagatal
    • Stigahæsti hundur
    • Íslenskir og Alþjóðlegir meistarar
  • Hafa samband

Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar HRFÍ fyrir starfsárið 2017-2018

Picture

                 Ársskýrsla Tíbet spaniel deildar HRFÍ 2017 -2018  
 
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað. Heilmikil fjölgun hefur orðið í okkar tegund undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun.

Ræktunarstjórn fundaði 4 sinnum ásamt því að nota stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál sem komu upp á milli funda. Auður sótti 3 fulltrúarráðsfundi HRFÍ fyrir hönd strjónar deildarinnar.
Þó nokkur vinna og fundir voru sóttir í sambandi við Tíbetska sýningu sem stóð til að halda í maí 2018 með hinum Tíbetsku tegundunum á landinu, eins og við gerðum árið 2016. Því miður gat ekki orðið af þeirri sýningu vegna of mikils kostnaðar og skorts á hentugu húsnæði sem væri heldur ekki of dýrt. Planið er að reyna aftur seinna. Vonandi tekst okkur það.

Augnskoðun

Augnskoðanir voru fjórar á starfsárinu. Alls mættu 19 Tíbet spaniel hundar í skoðun og þar af 4 í fyrsta sinn. 7 voru greindir með Districhiasis (viðsnúið augnhár) sem er arfgengt en má nota í ræktun á móti hreinum. Einn með entropion, einn með Cornea Dystrofi, hinir voru fríir.
Sem betur fer hefur PRA eða PRA3 ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur, svo að hægt sé að grípa til ráðstafana ef þessir sjúkdómar koma upp. Þess vegna verðum við öll að vera á varðbergi og láta augnskoða hundana okkar. Eins er nauðsynlegt að fylgjast með ef aðrir sjúkdómar koma upp. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið. Ef þessar reglur eru brotnar fær viðkomandi áminningu frá siðanefnd HRFÍ og við þriðja brot er viðkomandi vikið úr HRFÍ.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins  PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Prófaðir hafa verið flestir undaneldishundar á Íslandi.
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Allar niðurstöður og linkar á vottorð þeirra eru komin á heimasíðu deildarinnar og hægt að nálgast allar upplýsingar þar. Þess má geta að PRA3 er einn af PRA sjúkdómunum og er ekki enn komið próf fyrir öðrum en PRA3. Áfram þarf því að augnskoða hundana til að fylgjast með öðrum augnsjúkdómum, þ.á.m. öðrum tegundum af PRA.
Þess má geta að með þessum hundum, sem hafa verið testaðir við PRA3 sjúkdómnum, má segja að meirihlutinn af nýja stofninum okkar sé frír af PRA3 þar sem ekki þarf að prófa afkvæmi þeirra ef hitt foreldrið er einnig frítt af PRA 3.
Ræktun

Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ oftar en einu sinni með lágmarkseinkunina, „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um 2 mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun. Lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun er 20 mánaða

Við viljum biðja ræktendur að hvetja hvolpaeigendur sína til að mæta með hundana á sýningar til að fá ræktunardóm á þá, sérstaklega sem fullorðna. Ræktunarstjórn getur ekki mælt með rakka eða tík til undaneldis nema viðkomandi hafi uppfyllt þessar kröfur.
Engin skrifleg pörunarbeiðni barst stjórninni á árinu, en fjórar pörunartilkynningar bárust.

Fjölgun

Á starfsárinu hafa þrjú got litið dagsins ljós og komist á legg. Þann 20. Desember 2017 fæddust 5 hvolpar 1 rakki og 4 tíkur. Foreldrar eru ISCh NOCh NORDJW-10 Mango´s Nickelodeom og Chamillon´s Gold Jewel. Ræktandi er Helga Kolbeinsdóttir, Sedalia´s ræktun. Þann 28. Desember 2017 fæddust 2 rakkar. Foreldrar eru ISCh NOCh NORDW-10 Mango´s Nickelodeom og Prelu-Lindar Freyja. Ræktandi er Berglind Björk Jónsdóttir, Perlu-Lindar ræktun. Þann 21. Mars 2018 fæddust 5 hvolpar, 3 tíkur og 2 rakkar. Foreldrar eru ISCh RW-17 Falkiaros Just A Jewel For You og Frostrósar Greifi. Ræktandi er Ingibjörg Blomsterberg FagurRósar ræktun.
Óskum við rækendum  og eigendum til hamingju með hvolpana sína.
 
Inn-og útfluttningur
Tveir Tíbet spaniel voru fluttir til landsins á starfsárinu.
Frá Finnlandi kom tíkin Mow-Zow Halina fædd 14. Júní 2017. Eigendur Helga Kolbeinsdóttir og Auður Valgeirsdóttir. Ræktandi Katja Rita. Þess má geta að tíkin er undan fríum PRA3 DNA testuðum foreldrum og ber því ekki genið.  Rakkinn DKCh Demetríu Burce kom heim aftur eftir dvöl í Danmörku í tæp 2 ár. Eigandi og ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir.
Enginn Tíbet spaniel var fluttur frá landinu svo vitað sé.
Óskum eigendum þeirra innilega til hamingju með hundana sína.
.
Sýningar
Fimm sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2017-2018. Af þessum fimm voru 4 alþjóðlegar. Fjórar hvolpasýningar voru haldnar á starfsárinu. Okkar tegund átti fulltrúa í mars s.l. Á sumarsýningunni 24.- 25. júní voru 2 sýningar og hvolpasýning. Sú fyrri var Reykjavík Winner 2017 og voru 27 Tíbet skráðir og fengu þeir sem urðu BOB og BOS  titilinn RW-17 fyrir framan nafnið sitt eins og á síðustu árum. Á RW-17  sýninguna voru 16 Tíbet spaniel skráðir. Þau sem fengu tiilinn RW-17. Voru: BOB  ISCh RW-17 Falkiaro's Just a Jewel for You „Rós“ og BOS  ISCh RW-17 Multi Ch. Sommerlyst's Lha-wa Zi- Las "Zilas"
Seinni sýningin  25. júní var alþjóðleg og voru 25 Tíbet Spaniel skráðir.
Á septembersýninguna (16.-17.9) voru 24 Tíbet spaniel skráðir. Sýningin var alþjóðleg og var líka kölluð Curfts Qualitifications sem gaf BOB og BOS fullorðnum og bestu tík og rakka ungliðum, réttindi til að keppa á Crufts 2018.
Á nóvembersýninguna (25.-26.11) sem var alþjóðleg og kölluð Winter Wonderland voru 26 Tíbet spaniel skráðir.
Fyrsta sýning ársins 2018 var haldin var 3.-4. Mars. Sýningin var alþjóðleg og var kölluð Norðurljósasýning, það voru 25 Tíbet spaniel skráðir. BOB og BOS hundum voru veitt norðuljósastig ásamt hinum venjubundnu.
Á hvolpasýninguna sem var haldin 2. Mars var ein Tíbba tík skráð í flokki 6-9 mánaða.
 
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2017
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2017 samkvæmt lista HRFÍ er tíkin ISCh ISJCh Tíbráar Tinda Mudita „Dita“. En hún varð í 8.-9. Yfir stigahæstu hunda HRFÍ. með 16 stig. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
C.I.B. RW-13-14 ISVET.Ch Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ varð í 4. Sæti yfir stigahæsta öldunga HRFÍ ársins 2017 með 22 stig. Eigandi Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
Tíbráar Tinda ræktun Auðar Valgeirsdóttur varð í 3. Sæti yfir stigahæsta ræktanda HRFÍ ársins 2017 með 56 stig. Þess má geta að hún var heiðruð af HRFÍ á fyrstu sýningu ársins 2018 ásamt þeim sem lentu í 1. og 2. sæti.
Það er ekki auðvelt að ná inn á stigahæsta lista HRFÍ þar sem okkar tegund tilheyrir tegundahóp 9 sem er fjölmennasti hópur sýningar með yfir 20 tegundir. Og komast aðeins þeir sem lenda í sæti í tegundahópnum á listann. Að þessu sinni náði bara Mudita inn á listann.


Það er frábært að sjá jafna og góða fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma.
Gaman að segja frá því að okkar tegund átti fulltrúa í Best In Show (BIS) sætum á 2 sýningum starfsársins. Einning áttum við fullrtúa í BIS sætum öldunga og líka í  bæði ræktundarhópum og afkæmahópum sýningar. ISCh ISJCh Tíbráar Tinda Mudita var valin þriðji besti hundur sýningar á alþjólegu sumarsýningunni í júlí s.l. Og núna á s.l. mars sýningu var DK Ch Demitríu Bruce valinn annar besti hundur sýningar.
C.I.B. ISCh RW-13-RW-14 VETCh Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ tók þátt í 2 sýningum sem öldungur árið 2017 og lenti í 2. Sæti um besta öldung sýningar á þeim báðum.
Okkar tegund átti líka fulltrúa um BIS hvolp 6-9 mánaða á mars hvolpasýningunni s.l. En þá var Mow-Zow Halina „Milla“ valin besti hvolpur sýningar.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
Núna erum við komin með farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á júní/júlí sýningu (sumarsýningu)
Tíbet spaniel deildin gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á Reykjavíkur Winner sumarsýningu.
Tölvutraust ehf (Guðrún Helga og Stefán) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
Gjafabikarar
Gjafabikara bæði fyrir hvolpa og þá fullorðnu hafa verið gefnir af Demetríu ræktun, FargurRósar ræktun, Sedalia´s ræktun, Tíbráar Tinda ræktun og Kolbrúnu Jónsdóttur í nafni Rúbíns og Tim-Bú.
Deildin færir þessum aðilum bestu þakkir fyrir.

Nýir meistarar

Fimm nýir íslenskir meistarar (ISCh) og tveir nýir ungliðameistarar (ISJCh) einn öldungarmeistari og tveir alþjóðlegurmeistarar (C.I.B.) fengu staðfestingu frá HRFÍ og FCI á starfsárinu. Það eru þeir:
ISCh RW-17, Multi Ch Sommerlyst´s Lha-Wa-Zi-Las „Zilas“. Eigandi Guðrún Helga Harðardóttir. Ræktandi Ragnhild Primdal.
ISCh NOCh NORDJW-10 Mango´s Nickelodeon „Nicky“. Eigendur Auður Valgeirsdóttir/Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Gerd Eva Varslot.
ISCh Demetríu Joyful Mosi. Eigandi Birna Sigurðardótttir. Ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir.
ISCh ISJCh Tíbráar Tinda Karuna „Karri“. Eigandi Bjarnheiður Erlendsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
ISCh ISJCh Tíbráar Tinda Mudita „Díta“. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
 
Ungliðameistarar (ISJCh)
ISJCh Demetríu Han Solo. Eigandi Anna María Garðarsdóttir. Ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir.
ISJCh Tíbráar Tinda Princess Sakya-Devi „Kaya“. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
Öldungarmeistari (ISVET.Ch)
ISVET.Ch C.I.B. ISCh Toyway Ama-Ry-Lix „Tíbrá“. Eigandi Auður Valgeirsdóttir. Ræktandi Jouko Leiviska.
Alþjóðlegur meistari (C.I.B.)
C.I.B. ISCh RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy „Nói“ hefur fengið staðfestinu frá FCI. Eigandi Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
C.I.B. ISCh RW-17 Falkiaro`s Just a Jewel for You "Rós". Eigandi Ingibjörg Blomsterberg. Ræktandi Kristin Boe.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
 
 Félagsstarf

Nokkrar göngur hafa verið farnar á starfsárinu. Auglýsingar um göngurnar hafa verið settar  Facebook síðu deildarinnar með frekar stuttum fyrirvara sem hefur reynst ágætlega.
Vorfagnaður var haldin í endaðan Maí 2017  og tókst mjög vel. Við fengum grillvagninn til að elda gómsætan mat fyrir okkur, einnig vorum við með eftirréttaborð sem var í boði nokkra stjórnarkvenna.  Alls mættu 29 manns, hluti af þeim mætti eftir matinn. Happdrættið var á sínum stað og fjöldi frábærra vinninga, sem stjórnarmeðlimir voru búnir að safna. Þökkum við þeim fjölmörgu fyrirtækjum fyrir velvild og gjafmildi í okkar garð.
Við vorum með tvær sýningarþjálfanir úti í Víðidalnum fyrir sumarsýninguna. Ekki var vel mætt á þær sem var sennilega vegna veðurs, en það ringdi mikið þessa daga.
Því miður getum við ekki lengur fengið inni með þjálfanir á Korputorgi. Gæludýr.is hafa flutt úr húsnæðinu og er mikill missir af þessari frábæru aðstöðu sem við höfðum þar undanfarin ár.
Annars hafa deildarmeðlimir verið duglegir að nýta sé sýningarþjálfanir Ungmennadeildar fyrir sýningar.
 
Kynningar og Sámur
Ekki er lengur boðið uppá að hafa deildarfréttir í félagsblaðinu okkar Sámi.

Við höfum alltaf tekið þátt í smáhundakynningum í Garðheimum og verið með hundana okkar þar til sýnis og kynningar. Á septemberkynningunni 2017 náðum við því miður ekki að manna básinn okkar og vonum við að það komi ekki fyrir aftur. En núna 24.-25. Í febrúar 2018 náðum við að manna básinn og tókum þátt. Þessar kynningar hafa verið mjög skemmtilegar og tekist mjög vel. Bæði  hundar og menn hafa  verið til fyrirmyndar og fólk sýnt þeim mikinn og verðskuldaðan áhuga. Básinn okkar var skreyttur glæsilega m.a. með fallega lógóinu okkar og afhentum við stolt kynningabækling um okkar ástkæru tegund sem Royal Canin styrkti okkur með. Hönnuður lógósins er Anja Björg Kristinsdóttir. Á kynninguna núna komu 2 sjónvarpsstöðvarnar til að mynda og fjalla um hundana á kynningunni og vakti okkar tegund verskuldaða athygli og voru sýndar myndir af þeim sem birtist á stöðvunum.  Virkilega flott kynning fyrir smáhundana okkar innan HRFÍ. Hjartans þakkir til allra sem komu með dásamlegu Tíbbana sína á kynninguna.

Við höfum haldið úti Facebook-síðu fyrir okkar tegund undir heitinu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ“. Þar höfum við sett inn allar fréttir og uppákomur sem tilheyra okkar tegund. Einnig er önnur facebook (like) síða sem tengd er við heimasíðuna. Sú síða heitir Tíbet spanieldeild HRFÍ.  
Heimasíða 
Heimasíðan okkar hefur verið í góðri sókn á starfsárinu og uppfærð reglulega af Helgu Kolbeinsdóttur heimasíðustjóra.  Eins og áður hefur komið fram, eru allar niðurstöður úr dna testum fyrir augnsjúkdómnum PRA3 komin inn á heimasíðuna og nöfn þeirra hunda sem testaðir hafa verið fríir, ásamt öðrum sem eru frír vegna foreldra sinna eða forfeðra sinna. Þannig að núna geta eigendur hundana séð þarna hvort þeirra hundar séu fríir af PRA3. Allir sem eru skráðir þarna, þurfa ekki að fara í dna test fyrir sjúkdómnum. Ef einhverja hunda vantar enn þarna þá endilega hafið samband við Helgu heimasíðustjóra.

Lokaorð

Hér hefur verið fjallað um það helsta sem gerst hefur á starfsárinu.

Meginverkefni ræktunarstjónar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiði okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er.
 
26. mars 2018.
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
Auður Valgeirsdóttir, formaður.
 
Ræktunarstjórn 2017-2018 skipa:
Auður Valgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Blomsterberg, ritari
Kolbrún Jónsdóttir, meðstjórnandi
Guðrún Helga Harðardóttir, meðstjórnandi
Starfsnefnd: Steinunn Þórisdóttir, sem stuðningur við stjórn í hinum ýmsu málum.
Heimasíðustjóri: Helga Kolbeinsdóttir
 
 


Powered by Create your own unique website with customizable templates.