Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar starfsárið 2014-2015
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað. Heilmikil fjölgun hefur orðið í okkar tegund undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun.
Ræktunarstjórn fundaði 4 sinnum ásamt því að nota stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál sem komu upp á milli funda. Við (Auður, Kolbrún og Kristjana) sóttum þrjá fulltrúaráðsfundi sem HRFÍ boðaði til.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru fjórar á starfsárinu. Alls mættu ellefu Tíbet spaniel hundar í skoðun og þar af 6 í fyrsta sinn. Sá sem greindist á síðasta ári með grun um Catarakt, Post.pol. mætti aftur í júní sl. fékk greiningu að hann væri frír af afgegnum sjúkdómum. Tveir voru greindir með Districhiasis (viðsnúið augnhár) sem er arfgengt en má nota í ræktun á móti heinum. Allir hinir voru fríir.
Sem betur fer hefur PRA ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur svo að hægt sé að grípa til ráðstafana ef þessi sjúkdómur kemur upp. Þess vegna verðum við öll og sérstaklega ræktendur þessarar tegundar að vera dugleg að uppfræða hvolpeigendur okkar um mikilvægi þess að láta augnskoða hundana sína jafnvel þó ekki sé áætlað að rækta undan þeim. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið. Ef þessar reglur eru brotnar fær viðkomandi áminningu frá siðanefnd HRFÍ og við þriðja brot er viðkomandi vikið úr HRFÍ.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Prófaðir hafa verið átta Tíbet spaniel hundar á Íslandi. Það eru:
C.I.B. ISCh Toyway Ama-Ry-Lix „Tíbrá“
C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Un Bel Figo
C.I.B. ISCh Toyway-Ca-Isla „Tessie“
Toyway Tam-Sara
Toyway Tim Bu
Frostrósar Hrafna
Frostrósar Greifi „Lúkas“
ISCh Móna
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Innflutti finnski Tíbet spaniel rakkinn, Lilileian Yankee Doodle (Topaz), er líka DNA prófaður og er frír af PRA3. Þess má geta að PRA3 er einn af PRA sjúkdómunum og er ekki enn komið próf fyrir öðrum en PRA3. Áfram þarf því að augnskoða hundana til að fylgjast með öðrum augnsjúkdómum, þ.á.m. öðrum tegundum af PRA. Hinir innfluttu þau, Falkiaro`s Just A Jewel For You „Rós“, Sommerlyst´s Rimo Poso „Poso“ og Buus´s Bella Chen-Po „Bella“ eru einning frí, því foreldrar þeirra eru DNA prófaðir og frír af PRA3.
Þess má geta að með þessum hundum, sem hafa verið testaðir við PRA3 sjúkdómnum, má segja að meirihlutinn af nýja stofninum okkar sé frír af PRA3 þar sem ekki þarf að prófa afkvæmi þeirra ef hitt foreldrið er einnig frítt af PRA 3.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ oftar en einu sinni með lágmarkseinkunina, „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um 2 mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun.
Við viljum biðja ræktendur að hvetja hvolpaeigendur sína til að mæta með hundana á sýningar til að fá ræktunardóm á þá, sérstaklega sem fullorðna. Ræktunarstjórn vantar alltaf fleiri rakka til að geta mælt með til undaneldis.
Engin skrifleg pörunarbeiðni barst stjórninni á árinu, en tvær pörunartilkynningar bárust.
Fjölgun
Á starfsárinu hafa tvö got litið dagsins ljós. 22. apríl 2014 fæddust 6 hvolpar(1 dó fljótlega eftir fæðingu) 3 rakkar og 2 tíkur lifðu. Foreldrar eru ISCh Móna og Toyway Tim-Bu. Ræktandi er Guðrún Helga Harðardóttir, Demetríu ræktun. Þann 29. janúar 2015 fæddust tveir hvolpar (1 dáinn rakki) 1 tík lifði. Foreldrar eru C.I.B.Tíbráar Tinda Tibet´s Pride N Glory og Lilileian Yankee Doodle. Ræktandi er Auður Valgeirsdóttir, Tíbráar Tinda ræktun. Óskum við ræktendum og eigendum þeirra til hamingju með hvolpana sína.
Inn-og útfluttningur
Enginn Tíbet spaniel var fluttur inn á starfsárinu.
Sýningar
Fimm sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2014-2015 þar sem okkar hundar gátu tekið þátt, þar af 4 alþjóðlegar. Einning voru 2 sérstakar hvolpasýningar haldnar. Á sumarsýningunni 21.- 22. júní voru 2 sýningar sú fyrri var Reykjavík Winner 2014, og fengu þeir sem urðu BOB og BOS titilinn RW-14 fyrir framan nafnið sitt eins og á síðasta ári. Á RW-14 sýninguna voru 17 Tíbet spaniel skráðir, enginn hvolpur. Þau sem fengu tiilinn RW-14 eru RW-14 C.I.B. RW-13 ISCh Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ og RW-14 C.I.B. ISCh RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus.
Seinni sýningin 22. júní var alþjóðleg og voru 18 Tíbet Spaniel skráðir, enginn hvolpur.
Á septembersýninguna sem var kölluð Curfts Qualitifications sem gaf BOB og BOS fullorðnum og bestu tík og rakka ungliðum, réttindi til að keppa á Crufts 2015 voru 19 skráðir þar af 1 öldungur og 1 hvolpur sem mætti ekki. Þess má geta að tíkin Tíbráar Tinda Pink Lotus sem varð BOB náði þeim frábæra árangir að vinna tegundarhóp 9 og endaði í 2. sæti um besta hund sýningar (BIS). Þetta er í 1. sinn síðan árið 2006 sem við eigum hund í BIS sæti, en þá varð mamma Lotusar C.I.B.ISCh Toyway Ama-Ry-Lix (Tíbrá) BIS 1.
Í nóvember voru 23 skráðir (einn mætti ekki) þar af 4 hvolpar sem allir fengu heiðursverðlaun.
Á fyrstu sýningu ársins 2015 sem haldin var 28. febrúar og 1. Mars 2015, voru 20 Tíbbar skráðir, enginn hvolpur tók þátt.
Á hvolpasýningu 26. júlí s.l. var einn Tíbba rakki skráður í flokki 3-6 mánaða. Hann stóð sig vel og fékk heiðursverðlaun. Á hvolpasýninguna í janúar s.l. var enginn skráður af okkar tegund.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins
C.I.B. RW-14, ISCh RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus er stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2014 samkvæmt lista HRFÍ með 16 stig.
Tveir Tíbbar, systkinin C.I.B.RW-14, ISCh RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus og C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian „Buddha“ komust á lista yfir stigahæstu hunda ársins hjá HRFÍ 2014. Lotus varð í 2. sæti í tegundarhóp 9, seinni daginn á sumarsýningunni og varð í 1. sæti í september í tegundarhóp 9, ásamt því að verða í 2.sæti í BIS. Þannig að Lotus er stigahæsti Tíbbi ársins með 16 stig sem skilaði henni 8.-10. sæti yfir stigahæstu hunda ársins á lista HRFÍ. Buddha varð í 4. sæti í tegundarhóp 9 febrúar og er með 3 stig.
Tíbráar Tinda ræktun sýndi ræktunarhóp á öllum sýningum ársins og fékk heiðursverðlaun á þeim öllum. Tíbráar Tinda ræktun varð í 5. sæti um stigahæsta ræktanda HRFÍ ársins 2014.
Það er frábært að sjá fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma. Met skráning fyrir okkar tegund á stafsárinu var í nóvember, en þá voru 23 skráðir en 22 mættu.
Núna erum við komin með farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á júnísýningu (sumarsýningu) .
Tölvutraust ehf (Guðrún Helga og Stefán) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
J.R.J.ehf. (Kolbrún Jónsdóttir) gaf gjafbikara fyrir BOB og BOS í fullorðnum á öllum sýningum ársins 2014 nema seinni sýningunni í júní.
Tíbet spaniel deildin gaf gjafabikara fyrir BOB og BOS á seinni sumarsýningunni.
Gjafabikara fyrir hvolpa á nóvembersýninuna gaf Demitríu ræktun (Guðrún Helga)
Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf gjafabikara fyrir BOB og BOS á febrúarsýningunni 2015.
Deildin færir þeim bestu þakkir fyrir.
Nýir meistarar
Einn nýr íslenskur meistari (ISCh) fékk staðfestingu um meistaratitil á starfsárinu. Það er rakkinn ISCh Tíbráar Tinda Red Snap Dragon „Dragon“. Annar rakki Tíbráar Tinda Tiger´s Eye „Tiger“ er búinn að uppfylla skilyrði fyrir ISCh meistartign en á eftir að fá staðfestinu frá HRFÍ um titilinn.
Einn nýr alþjóðlegir meistarar (C.I.B.) fékk staðfestingu frá FCI á starfsárinu. Það er tíkin C.I.B. RW-14,ISCh, RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus „Lotus“. Ræktandi og eigandi þessara hunda er Auður Valgeirsdóttir.
Norskur meistari (N.Uch)
Eins og áður hefur komið fram þá var flutt út til Noregs árið 2012 tíkin N.Uch Tíbráar Tinda Turquoise. Hún hefur gert það gott á sýningum í Noregi og er orðin N.Uch.
Óskum við eigendum þeirra og ræktanda til hamingju með árangurinn.
Félagsstarf
Nokkrar göngur hafa verið farnar og hefur þátttaka verið ágæt. Áfram verður boðið upp göngur enda frábært fyrir hunda og menn að hittast og kynnast. Göngustjórar hafa verið, Ingibjörg Blomsterberg og Jóhanna Þórarinsdóttir.
Auglýsingar um göngurnar hafa verið sendar á póstlistann okkar og Facebook síðu deildarinnar svo þær fari nú ekki fram hjá neinum.
Til stóð að halda „hvolpaparty“ fyrir tvö got, Demetríu ræktun og got Dagnýjar Egilsdóttur. Því miður náðist ekki að ná hópnum saman vegna anna hjá hvolpeigendum og ræktendum.
Við buðum deildarmeðlimum upp á snyrtinámskeið sem haldið var á Hundasnyrtistofunni Dekurdýrum undir leiðsögn Ástu Maríu Guðbergsdóttur hundasnyrtis. Þátttaka var góð.
Deildin bauð upp á tvær sýninga þjálfanir á grasbala í Víðidal fyrir sumarsýninguna í júní. Þjálfunin sem var haldin undir stjórn Auðar Valgeirsdóttur. Þjálfunin var m.a. haldin til að hundarinr fengju tækifæri til að æfa sig og venjast grasinu fyrir sumarsýninguna sem var haldin úti.
Kynningar og Sámur
Deildin hefur skrifað deildarfréttir í öll tölublöð Sáms til að leyfa fólki að fylgjast með því sem er að gerast innan tegundarinnar.
Við höfum tekið þátt í smáhundakynningum í Garðheimum og verið með hundana okkar þar til sýnis og kynningar. Einning vorum við með kynningarbás á 45 ára afmælishátíð HRFÍ 4.september. Þessar kynningar hafa verið mjög skemmtilegar og tekist mjög vel. Bæði hundar og menn hafa verið til fyrirmyndar og fólk sýnt þeim mikinn og verðskuldaðan áhuga. Gaman væri að fá fleiri til að vera með okkur á næstu kynningum.
Við höfum haldið úti Facebook-síðu fyrir okkar tegund undir heitinu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ“. Þar höfum við sett inn allar fréttir og uppákomur sem tilheyra okkar tegund.
Heimasíða
Helga Kolbeinsdóttir hefur haft umsjón með síðunni okkar og uppfært hana reglulega með helstu fréttum og myndum frá göngum og sýningum, sem hún hefur fengið sent frá okkur. Deildarmeðlimum er líka velkomnið að senda okkur myndir af hundunum sínum til að birta á síðunni. Við óskum líka eftir að fá myndir af hundum sem hlotið hafa meistaratign í gegnum árin til að birta á síðunni. Allar góðar hugmyndir um gott efni til að hafa á síðunni eru vel þegnar.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta sem gerst hefur á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjónar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. En það er ekki nóg að fimm manneskjur í stjórn séu allar að vilja gerðar. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiði okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er.
7. apríl 2015
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
Auður Valgeirsdóttir, formaður.
Ræktunarstjórn 2014-2015 skipa:
Auður Valgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Kolbrún Jónsdóttir, ritari
Guðrún Helga Harðardóttir, meðstjórnandi.
Ingibjörg Blomsterberg, meðstjórnandi