Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar starfsárið 2015-2016
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað. Heilmikil fjölgun hefur orðið í okkar tegund undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun.
Ræktunarstjórn fundaði 5 sinnum ásamt því að nota stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál sem komu upp á milli funda. Við sóttum þrjá fulltrúaráðsfundi sem HRFÍ boðaði til. Auður, Kristjana og Steinunn sóttum kynningarfund um ræktunardeildir á vegum HRFÍ.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru fjórar á starfsárinu. Alls mættu fjórtán Tíbet spaniel hundar í skoðun og þar af 1 í fyrsta sinn. Einn var greindur með Districhiasis (viðsnúið augnhár) sem er arfgengt en má nota í ræktun á móti hreinum. Allir hinir voru fríir.
Sem betur fer hefur PRA ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur svo að hægt sé að grípa til ráðstafana ef þessi sjúkdómur kemur upp. Þess vegna verðum við öll og sérstaklega ræktendur þessarar tegundar að vera dugleg að uppfræða hvolpeigendur okkar um mikilvægi þess að láta augnskoða hundana sína jafnvel þó ekki sé áætlað að rækta undan þeim. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið. Ef þessar reglur eru brotnar fær viðkomandi áminningu frá siðanefnd HRFÍ og við þriðja brot er viðkomandi vikið úr HRFÍ.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Prófaðir hafa verið átta Tíbet spaniel hundar á Íslandi. Það eru:
C.I.B. ISCh Toyway Ama-Ry-Lix „Tíbrá“
C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Un Bel Figo
C.I.B. ISCh Toyway-Ca-Isla „Tessie“
Toyway Tam-Sara
Toyway Tim Bu
Frostrósar Hrafna
Frostrósar Greifi „Lúkas“
ISCh Móna
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Innflutti finnski Tíbet spaniel rakkinn, Lilileian Yankee Doodle (Topaz), er líka DNA prófaður og er frír af PRA3. Þess má geta að PRA3 er einn af PRA sjúkdómunum og er ekki enn komið próf fyrir öðrum en PRA3. Áfram þarf því að augnskoða hundana til að fylgjast með öðrum augnsjúkdómum, þ.á.m. öðrum tegundum af PRA. Hinir innfluttu þau, Falkiaro`s Just A Jewel For You „Rós“, Sommerlyst´s Rimo Poso „Poso“ og Buus´s Bella Chen-Po „Bella“ eru einning frí, því foreldrar þeirra eru DNA prófaðir og frír af PRA3.
Þess má geta að með þessum hundum, sem hafa verið testaðir við PRA3 sjúkdómnum, má segja að meirihlutinn af nýja stofninum okkar sé frír af PRA3 þar sem ekki þarf að prófa afkvæmi þeirra ef hitt foreldrið er einnig frítt af PRA 3.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ oftar en einu sinni með lágmarkseinkunina, „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um 2 mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun.
Við viljum biðja ræktendur að hvetja hvolpaeigendur sína til að mæta með hundana á sýningar til að fá ræktunardóm á þá, sérstaklega sem fullorðna. Ræktunarstjórn vantar alltaf fleiri rakka til að geta mælt með til undaneldis.
Engin skrifleg pörunarbeiðni barst stjórninni á árinu, en tvær pörunartilkynningar bárust.
Undanþága um lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun
Stjórn deildarinnar sendi stjórn HRFÍ beiðni um undanþágu frá 24 mánaða grundvallarreglunni þess efnis að lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun verði 20 mánaðan í staðinn fyrir 24 mánaða eins og grundvallarreglur kveða á um.. Beiðni okkar var samþykkt..
Fjölgun
Á starfsárinu hefur eitt got litið dagsins ljós. Þann 24. september 2015 fæddust 5 hvolpar (1 fæddist dáinn) 2 rakkar og 2 tíkur lifðu. Foreldrar eru ISCh Tíbráar Tinda Cherry Blossom og Toyway Tim-Bu. Ræktandi er Auður Valgeirsdóttir Tíbráar Tinda ræktun. Óskum við ræktanda og eigendum þeirra til hamingju með hvolpana sína.
Inn-og útfluttningur
Þrír Tíbbar voru fluttir inn á starfsárinu og komu þeir allir frá Danmörku. Tveir rakkar og ein tík. Fullorðinn rakki fæddur 29.02. 2012 Multie Ch Sommerlyst´s Lha-Wa-Zilas (sable) og tíkin Sommerlyst´s Yoi Khe-San (black & tan) fædd 10.12.2014. Eigandi þeirra er Guðrún Helga Harðardóttir. Ræktandi Ragnhild Primdal. Rakkinn Kris Kris Tibetan Lhama (rauðsable) fæddur 29.06. 2015. Eigandi hans er Kristín Anna Toft. Ræktandi Kristine Frey. Óskum eigendum þeirra innilega til hamingju með hundana sína.
Von er á fleiri Tíbbum á næstu mánuðum.
Sýningar
Sjö sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2015-2016 þar sem okkar hundar gátu tekið þátt, þar af 4 alþjóðlegar. Á árinu 2015 tóku ekki hvolpar af okkar tegund þátt á þeim hvolpasýningum sem haldnar voru. Haldnar voru 2 sýningar 23. - 25. maí. Á sýningarnar voru skráðir 15 Tíbet spaniel. Seinni sýningin var kölluð Norðurljósasýning en þar gátu þeir sem unnu á báðum sýningum BOB eða BOS fengið NLW-15 titil. Einn tíbbi náði þeim árangri en það var tíkin C.I.B. ISCh, RW -15, RW- 14, RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus. Lotus gerði svo enn betur á norðuljósasýningunni, vann grúbbu 9 og endaði sem Besti hundur sýningar! Þetta er í þriðja sinn sem Tíbbi verður BIS á Íslandi og í fyrsta sinn sem hann er ræktaður á Íslandi. Á sumarsýningunni 25.- 26. júlí voru 2 sýningar sú fyrri var Reykjavík Winner 2015, og fengu þeir sem urðu BOB og BOS titilinn RW-15 fyrir framan nafnið sitt eins og á síðustu árum. Á RW-15 sýninguna voru 10 Tíbet spaniel skráðir.. Þau sem fengu tiilinn RW-15 eru ISCh, RW-15 Tíbráar Tinda Red Snap Dragon og C.I.B. ISCh, RW -15, RW- 14, RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus.
Seinni sýningin 26. júlí var alþjóðleg og voru 11 Tíbet Spaniel skráðir.
Á septembersýninguna sem var kölluð Curfts Qualitifications sem gaf BOB og BOS fullorðnum og bestu tík og rakka ungliðum, réttindi til að keppa á Crufts 2016 voru 22 skráðir.
Í nóvember voru 20 Tíbbar skráðir. Dómari tegundarinnar var nýútskrifaði íslenski dómarinn Daníel Örn Hinriksson sem dæmdi tegundina í fyrsta sinn.
Á fyrstu sýningu ársins 2016 sem haldin var 27.-28. febrúar voru 20 Tíbbar skráðir.
Á hvolpasýningu HRFÍ og Royal Canin sem haldin var 26.02. 2016 voru 4 tíbba hvolpar sýndir, 3 í flokki 3-6 mánaða og 1 í flokki 6-9 mánaða. Þeir stóðu sig allir frábærlega og fengu allir heiðursverðlaun.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins
C.I.B. ISCh NLW15, RW15, RW-14, RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus er stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2015 samkvæmt lista HRFÍ. Hún fékk 25 stig sem skilaði henni 6. sæti yfir stigahæstu hunda ársins á lista HRFÍ 2015.
Tíbráar Tinda ræktun sýndi ræktunarhóp á öllum sýningum ársins og fékk heiðursverðlaun á þeim öllum. Tíbráar Tinda ræktun varð í 4. sæti um stigahæsta ræktanda HRFÍ ársins 2015.
Það er frábært að sjá fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma.
Núna erum við komin með farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á júnísýningu (sumarsýningu) .
Tölvutraust ehf (Guðrún Helga og Stefán) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
Rúbín og Tim-Bu (Kolbrún Jónsdóttir) gáfu gjafabikara fyrir BOB og BOS á septembersýningunni.
Demetríu ræktun (Guðrún Helga Harðardóttir) gaf gjafabikara fyrir BOB og BOS og líka fyrir bestu unghundana á fyrri sýninunga í Maí. Gjafabikara fyrir BOB og BOS á norðuljósasýningunni gaf Royal Canin (Dýrheimar ehf).
Silfurs ræktun (Kristjana Ólafsdóttir) og Lúkas og Rós (Ingibjörg Blomsterberg) gáfu gjafabikara fyrir BOB og BOS á báðum sumarsýningunum í júlí.
Demetríu ræktun (Guðrún Helga Harðardóttir) gaf gjafabikara fyrir BOB og BOS á febrúarsýningunni síðust.
Tíbet spaniel deildin gaf gjafabikara fyrir BOB og BOS ásamt verðlaunapeningum fyrir alla þátttakendur á nóvembersýningunni í tilefni af 20 ára afmæli deildarinnar.
Gjafabikara fyrir BOB og BOS í báðum flokkum hvolpa á Hvolpasýningu HRFÍ og Royal Canin 26. febrúar gaf Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir)
Deildin færir þeim bestu þakkir fyrir.
Nýir meistarar
Fjórir nýir íslenskir meistarar (ISCh) fengu staðfestingu um meistaratitil á starfsárinu. Það eru: ISCh Tíbráar Tinda Tiger´s Eye „Tiger“ Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdótti.
ISCh Perlu-Lindar Bjartur. Eigandi Steinunn Þórisdóttir. Ræktandi Berglind B. Jónsdóttir.
ISCh Tíbráar Tinda Cherry Blossom ,,Cherry”. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
ISCh Falkarios Just A Jewel For You ,Rós”. Eigandi Ingibjörg Blomsterberg. Ræktandi Kristin Boe.
Toyway Tim-Bu er líka búinn að uppfylla kröfur um ISCh titil en á eftir að fá staðfestingu frá HRFÍ. Eigandi hans er Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Jouko Leiviskä.
Nýr alþjóðlegur meistari (C.I.B.)
Einn nýr alþjóðlegur meistari (C.I.B.) fékk staðfestingu frá FCI á starfsárinu. Það er rakkinn C.I.B. ISCh RW-15 Tíbráar Tinda Red Snap Dragon ,,Dragon”. Ræktandi og eigandi er Auður Valgeirsdóttir.
Félagsstarf
Nokkrar göngur hafa verið farnar á starfsárinu. Auglýsingar um göngurnar hafa verið settar Facebook síðu deildarinnar svo þær fari nú ekki fram hjá neinum.
Einning höfðum við frábæran hitting á góðum sumardegi í hundagerði í Mosó með kaffi, gosi og hlaðborði af allskonar góðgæti.
Deildin bauð upp á tvær sýninga þjálfanir á grasbala í Víðidal fyrir sumarsýninguna í júlí. Þjálfunin sem var haldin undir stjórn Auðar Valgeirsdóttur. Þjálfunin var m.a. haldin til að hundarinr fengju tækifæri til að æfa sig og venjast grasinu fyrir sumarsýninguna sem var haldin úti.
Deildin átti 20 ára afmæli 19. nóvember og af því tilefni héldum við afmælishátíð laugardagskvöldið 21. nóvember sem var mjög vel heppnuð. Áttum góða kvöldstund saman með frábærum mat og einning var happadrætti sem var til skyrktar deildinni. Við söfnuðum fjölmörgum glæsilegum vinningum frá frábærum fyrirtækjum og þökkum við þeim öllum innilega fyrir gjafmildina.
Kynningar og Sámur
Deildin hefur skrifað deildarfréttir í öll tölublöð Sáms til að leyfa fólki að fylgjast með því sem er að gerast innan tegundarinnar. Ekki var boðið uppá að hafa deildarfréttir í síðasta Sám ársins 2015.
Við höfum tekið þátt í smáhundakynningum í Garðheimum og verið með hundana okkar þar til sýnis og kynningar. Þessar kynningar hafa verið mjög skemmtilegar og tekist mjög vel. Bæði hundar og menn hafa verið til fyrirmyndar og fólk sýnt þeim mikinn og verðskuldaðan áhuga. Gaman væri að fá fleiri til að vera með okkur á næstu kynningum.
Við höfum haldið úti Facebook-síðu fyrir okkar tegund undir heitinu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ“. Þar höfum við sett inn allar fréttir og uppákomur sem tilheyra okkar tegund.
Heimasíða
Heimasíðan okkar hefur ekki verið uppfærð í langan tíma. Enda virðast flestir hafa notfæra sér facebook deildarsíðuna okkar. Vonum að við getum gert bót á því á næstunni.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta sem gerst hefur á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjónar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiði okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er.
31. mars 2016.
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
Auður Valgeirsdóttir, formaður.
Ræktunarstjórn 2015-2016 skipa:
Auður Valgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Kolbrún Jónsdóttir, ritari
Guðrún Helga Harðardóttir, meðstjórnandi.
Ingibjörg Blomsterberg, meðstjórnandi
Starfsnefnd: Steinunn Þórisdóttir sem stuðningur við stjón í hinum ýmsu málum.