Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar HRFÍ fyrir starfsárið 2016-2017
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað.
Heilmikil fjölgun hefur orðið í okkar tegund undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun.
Ræktunarstjórn fundaði sex sinnum ásamt því að nota stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál sem komu upp á milli funda.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru fjórar á starfsárinu. Alls mættu níu tíbet spaniel hundar í skoðun og þar af þrír í fyrsta sinn. Þrír voru greindir með Districhiasis (viðsnúið augnhár) sem er arfgengt en má nota í ræktun á móti heinum. Einn með entropion. Allir hinir voru fríir.
Sem betur fer hefur PRA eða PRA3 ekki greinst í neinum tíbet spaniel á Íslandi en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur, svo að hægt sé að grípa til ráðstafana ef þessir sjúkdómar koma upp. Þess vegna verðum við öll að vera á varðbergi og láta augnskoða hundana okkar. Eins er nauðsynlegt að fylgjast með ef aðrir sjúkdómar koma upp. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið. Ef þessar reglur eru brotnar fær viðkomandi áminningu frá siðanefnd HRFÍ og við þriðja brot er viðkomandi vikið úr HRFÍ.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Prófaðir hafa verið flestir undaneldishundar á Íslandi. Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf ef báðir foreldrar eru fríir af sjúkdómnum. Allar niðurstöður og tenglar á vottorð þeirra eru komin á heimasíðu deildarinnar og hægt að nálgast allar upplýsingar þar. Þess má geta að PRA3 er einn af PRA sjúkdómunum og er ekki enn komið próf fyrir öðrum en PRA3. Áfram þarf því að augnskoða hundana til að fylgjast með öðrum augnsjúkdómum, þ.á.m. öðrum tegundum af PRA.
Þess má geta að með þessum hundum, sem hafa verið prófaðir við PRA3 sjúkdómnum, má segja að meirihluti nýja stofnsins okkar sé frír af PRA3 þar sem ekki þarf að prófa afkvæmi þeirra ef hitt foreldrið er einnig frítt af PRA 3.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ oftar en einu sinni með lágmarkseinkunina, „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um tveggja mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun. Lágmarksaldur tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun er 20 mánaða.
Við viljum biðja ræktendur að hvetja hvolpaeigendur sína til að mæta með hundana á sýningar til að fá ræktunardóm á þá, sérstaklega sem fullorðna. Ræktunarstjórn vantar alltaf fleiri rakka til að geta mælt með til undaneldis.
Engin skrifleg pörunarbeiðni barst stjórninni á árinu en þrjár pörunartilkynningar bárust.
Fjölgun
Á starfsárinu hafa þrjú got litið dagsins ljós sem er met í okkar tegund í allavega mörg ár. Þann 4. júlí 2016 fæddust fimm hvolpar, þrír rakkar og tvær tíkur. Foreldrar eru ISCh Falkiaros Just A Jewel For You og Frostrósar Greifi. Ræktandi er Ingibjörg Blomsterberg, FagurRósar-ræktun. Þann 14. júlí fæddust fimm hvolpar (einn dó), tveir rakkar og tvær tíkur. Foreldrar eru Buus‘s Bella Chen-Po og Demetríu Bruce. Ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir, Demetríu-ræktun. Þann 12. september fæddust þrír hvolpar, allt tíkur. Foreldrar eru ISCh Tíbráar Tinda Cherry Blossom og NOCh NORDJW-19 Mango´s Nickelodeom. Ræktandi er Auður Valgeirsdóttir Tíbráar Tinda-ræktun. Óskum við rækendum og eigendum til hamingju með hvolpana sína.
Inn-og útfluttningur
Mikil gróska hefur verið á innfluttningi á okkar tegund á starfsárinu.
Fimm tíbbar voru fluttir inn á starfsárinu og komu fjórir þeirra frá Noregi og ein tík frá Finnlandi. Tveir rakkar og þrjár tíkur.
Fullorðinn rakki fæddur 25. október 2009 NOCh NORDJW-10 Mango´s Nickelodeon (ljós sable). Eigendur Auður Valgeirsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Gerd Eva Varslot.
Tíkin Chamiilon´s I Believe In You (gyllt) fædd 4. janúar 2016. Eigandi Auður Valgeirsdóttir. Ræktandi Bente Lund.
Tíkin Chamiilon´s Gold Jewel (sable) fædd 9. desember 2014. Eigandi Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Bente Lund.
Rakkinn sem flutti út til Noregs með eiganda sínum í júní 2013, Tíbráar Tinda Blue Poppy (sable) fæddur 30. ágúst 2011. Eigandi Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
Nýkomin úr einangrun, frá Finnlandi, er tíkin Xaramae Eye Candy (sable) fædd 1. september 2016. Eigandi Guðrún Helga Harðardóttir. Ræktandi Eini Vihko.
Óskum eigendum þeirra innilega til hamingju með hundana sína.
Rakkinn Demetríu Bruce fór til Danmerkur tímabundið á starfsárinu og er ekki kominn heim þegar þetta er skrifað. Eigandi og ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir.
Sýningar
Fimm sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2016-2017 ásamt einni sérsýningu fyrir tíbetskar tegundir sem við tókum þátt í með hinum tegundunum. Af þessum fimm voru fjórar alþjóðlegar. Fimm hvolpasýningar voru haldnar á starfsárinu. Okkar tegund átti fulltrúa á þeim öllum. Á sumarsýningunni 22.- 24. júlí voru tvær sýningar og hvolpasýning. Sú fyrri var Reykjavík Winner 2016 og fengu þeir sem urðu BOB og BOS titilinn RW-16 fyrir framan nafnið sitt eins og á síðustu árum. Á RW-16 sýninguna voru 16 tíbet spaniel skráðir. Þau sem fengu tiilinn RW-16 voru RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy og C.I.B. ISCh RW-16. RW -15, RW- 14, RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus.
Seinni sýningin 24. júlí var alþjóðleg og voru 17 tíbet spaniel skráðir.
Einn hvolpur var skráður í flokki 6-9 mánaða á hvolpasýninguna sem haldin var 22. júlí.
Á septembersýninguna sem var kölluð Crufts Qualitifications sem gaf BOB og BOS fullorðnum og bestu tík og rakka ungliðum, réttindi til að keppa á Crufts 2017 voru 16 skráðir.
Á hvolpasýninguna í flokki 6-9 mánaða sem var haldin 2. september var einn hvolpur skráður.
Sérsýning tíbetskra tegunda var haldin mánudagskvöldið 5. september 2016. Dómari var Yvonne Cannon frá Írlandi. Sýningin var haldin í samvinnu við hinar tíbetsku tegundirnar sem til eru á Íslandi.
Alls voru skráðir 43 hundar af fjórum tegundum á sýninguna. 21 tíbet spaniel var skráður, þar af einn hvolpur. Sýningin var glæsileg og gekk frábærlega og var haldin í húsnæði Gæludýr.is á Korputorgi.
Vil ég þakka, fyrir hönd stjórnar, stjórn Shih tzu deildar fyrir góða samvinnu og tengiliðum tegundanna lhasa apso og tíbet terrier, ásamt öllum þeim fjölmörgu sem lögðust á eitt við að aðstoða okkur við hin ýmsu störf tengdum sýningunni. Einnig þeim sem gáfu verðlaun, sáu um veitingar og ekki síst eigendum Gæludýr.is fyrir afnot af húsnæði þeirra.
Í nóvember voru 17 tíbet spaniel skráðir og átta hvolpar.
Fyrsta sýning ársins 2017 var haldin 4.-5. mars. Á sýninguna, sem var kölluð Norðurljósasýning, var 21 tíbet spaniel skráður. BOB og BOS hundum voru veitt norðuljósastig ásamt hinum venjubundnu.
Á hvolpasýninguna sem var haldin 3. mars voru níu hvolpar skráðir, þrír í flokki 3-6 mánaða og sex í flokki 6-9 mánaða.
Þess má geta að á þessari fyrstu sýningu og hvolpasýningu ársins 2017 var slegið met í skráningu tíbet spaniel hunda þar sem samanlagt voru 30 tíbet spaniel skráðir.
Stigahæsti tíbet spaniel ársins
Stigahæsti tíbet spaniel ársins 2016 samkvæmt lista HRFÍ er RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy,,Nói“. Það er ekki auðvelt að ná inn á stigahæsta lista HRFÍ þar sem okkar tegund tilheyrir tegundahópi 9 sem er fjölmennasti hópur sýningar með yfir 20 tegundir og komast aðeins þeir sem lenda í verðlaunasætum í tegundahópnum á listann En gaman er að segja frá því að samt sem áður eru þrir tíbet spaniel hundar á listanum í ár. Þau eru ásamt RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy, tíkin C.I.B. ISCh NLW-15, RW,16,15,14,13 Tíbráar Tinda Pink Lotus og rakkinn ISCh Toyway Tim-Bu, bæði með 3 stig.
Tíbráar Tinda-ræktun sýndi ræktunarhóp á öllum sýningum ársins og fékk heiðursverðlaun á þeim öllum. Tíbráar Tinda-ræktun varð í 4.-5. sæti um stigahæsta ræktanda HRFÍ ársins 2016.
Það er frábært að sjá fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma.
Núna erum við komin með farandbikara fyrir BOB og BOS (hjá fullorðnum) á allar fastar sýningar ársins nema Reykjavíkur Winner sýninguna.
Tíbráar Tinda-ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
Perlu-Lindar-ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á júní/júlí sýningu (sumarsýningu) .
Tölvutraust ehf (Guðrún Helga og Stefán) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
Gjafabikarar
FagurRósar-ræktun (Ingibjörg Blomserberg) gaf bikara fyrir BOB og BOS á RW-16 sýningunni.
Rúbín og Tim-Bu (Kolbrún Jónsdóttir) gáfu bikara fyrir BOB og BOS á alþjóðlegu sýningunni í júlí.
Ísljós ehf (Bjarnheiður Erlendsdóttir) gaf bikar fyrir BOB hvolp á hvolpa-sumarsýningunni.
Silfurs-ræktun (Kristjana Ólafsdóttir) gaf bikara fyrir BOB og BOS á septembersýningunni.
Tíbráar Tinda-ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf bikar fyrir BOB hvolp á hvolpasýningunni í september
Tíbet spanieldeild gaf bikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningunni
Demetríu-ræktun (Guðrún Helga Harðardóttir) og Fagurrósar-ræktun (Ingibjörg Blomsterberg) gáfu bikara fyrir BOB og BOS hvolpa á hvolpasýningunni í nóvember, ásamt glaðningi fyrir alla hvolpa.
Steinunn Þórisdóttir gaf bikara fyrir BOB og BOS á marssýningunni s.l.
Tíbráar Tinda-ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf bikar fyrir BOB hvolp ásamt árituðum verðlaunapeningum fyrir alla 3 í yngri flokki á hvolpasýningunni í mars s.l.
FagurRósar-ræktun (Ingibjörg Blomsterberg) gaf bikara fyrir BOB og BOS ásamt árituðum verðlaunapeningum fyrir alla 6 í eldri flokki á hvolpasýningunni í mars s.l.
Deildin færir þeim bestu þakkir fyrir.
Nýir meistarar
Tveir nýir íslenskir meistarar (ISCh) og tveir nýir ungliðameistarar (ISJCh) fengu staðfestingu frá HRFÍ á starfsárinu. Það eru þeir:
ISCh Toyway Tim-Bu. Eigandi Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Jouko Leiviskä.
ISCh Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi Helga Kolbeinsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
ISJCh Tíbráar Tinda Karuna. Eigandi Bjarnheiður Erlendsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir
ISJCh Tíbráar Tinda Mudita. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
Þess má geta að gotsystkinin, Karuna og Mudita, eru fyrstu ungliðameistararnir í tegundinni en á síðasta ári var byrjað að gefa ungliðastig á sýningum HRFÍ.
Enginn tíbet spaniel fékk staðfestingu um alþjóðlegan meistaratitil (C.I.B.) á starfsárinu.
Félagsstarf
Nokkrar göngur hafa verið farnar á starfsárinu. Auglýsingar um göngurnar hafa verið settar Facebook-síðu deildarinnar.
Snyrtikynning/námskeið var haldið fyrir deildarmeðlimi 17. maí undir stjórn Ástu Maríu Guðbergsdóttur hundasnyrtis í Dekurdýrum
Nokkrar sýningarþjálfanir voru haldnar í samvinnu við tíbetsku tegundirnar til styrktar sameiginlegu sérsýningunni sem haldin var í september.
Auður Sif Sigurgeirsdóttir bauð deildinni að halda fjórar sýningarþjálfanir í febrúar s.l. Mjög vel var mætt en þessar þjálfanir voru eingöngu fyrir tíbet spaniel hunda. Allur ágóði rann til deildarinnar og þökkum við Auði Sif innilega fyrir frábæra þjálfun og gjafmildi.
Annars hafa deildarmeðlimir verið duglegir að nýta sé sýningarþjálfanir Ungmennadeildar fyrir sýningar.
Kynningar og Sámur
Ekki var boðið upp á að hafa deildarfréttir í Sámi á starfsárinu.
Við höfum tekið þátt í smáhundakynningum í Garðheimum og verið með hundana okkar þar til sýnis og kynningar. Þessar kynningar hafa verið mjög skemmtilegar og tekist mjög vel. Bæði hundar og menn hafa verið til fyrirmyndar og fólk sýnt þeim mikinn og verðskuldaðan áhuga. Á síðustu kynningu Garðheima helgina 18.-19. mars s.l.var ákveðið að gera enn betur og var básinn okkar skreyttur glæsilega. Einnig frumsýndum við nýjan kynningarbækling um okkar ástkæru tegund sem Royal Canin styrkti okkur með. Erum við þeim mjög þakklát. Bæklingurinn skartaði m.a. nýja glæsilega lógóinu okkar, sem hannað var á starfsárinu. Hönnuður lógósins er Anja Björg Kristinsdóttir. Á kynninguna núna komu m.a. nokkrir af hvolpunum sem fæddust á síðasta ári og stóðu þeir sig mjög vel og fengu góða umhverfisþjálun. Hjartans þakkir til allra sem komu með dásamlegu tíbbana sína á kynninguna.
Við höfum haldið úti Facebook-síðu fyrir okkar tegund undir heitinu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ“. Þar höfum við sett inn allar fréttir og uppákomur sem tilheyra okkar tegund. Einnig er önnur Facebook (like) síða sem tengd er við heimasíðuna.
Heimasíða
Heimasíðan okkar hefur verið í góðri sókn á starfsárinu og uppfærð reglulega af Helgu Kolbeinsdóttur heimasíðustjóra. Eins og áður hefur komið fram eru allar niðurstöður úr dna prófum fyrir augnsjúkdómnum PRA3 komnar inn á heimasíðuna og nöfn þeirra hunda sem prófaðir hafa verið fríir, ásamt öðrum sem eru fríir vegna foreldra sinna eða forfeðra sinna. Þannig að núna geta eigendur hundanna séð þarna hvort þeirra hundar séu fríir af PRA3. Allir sem eru skráðir þarna þurfa ekki að fara í dna-próf fyrir sjúkdómnum.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta sem gerst hefur á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjónar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiði okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er.
29. mars 2017.
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spanieldeildar HRFÍ,
Auður Valgeirsdóttir, formaður.
Ræktunarstjórn 2016-2017 skipa:
Auður Valgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Kolbrún Jónsdóttir, ritari
Guðrún Helga Harðardóttir, meðstjórnandi
Ingibjörg Blomsterberg, meðstjórnandi
Starfsnefnd: Steinunn Þórisdóttir, sem stuðningur við stjórn í hinum ýmsu málum.
Heimasíðustjóri: Helga Kolbeinsdóttir