Ársfundur Tíbet Spanieldeildar HRFÍ
Ársfundur Tíbet Spanieldeildar HRFÍ
Skrifstofa HRFÍ
Þriðjudagur 9. Apríl 2013
Kl: 20:00
Mættir úr stjórn:
Auður Valgeirsdóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Guðrún Helga Harðardóttir og Kristjana Ólafsdóttir.
Aðrir:
Berglind Björk Jónsdóttir, Ingibjörg Blomsterberg, Sigurgeir Þráinn Jónsson, Jóhanna Þórarinsdóttir, María Guðbjörg Guðfinnsdóttir, Dagný Egilsdóttir og Stefán Þórarinsson.
Fundarstjóri var Kristjana Ólafsdóttir
Dagskrá:
Helga Kolbeinsdóttir las fundargerð síðasta ársfundar. Hún var einróma samþykkt.
Auður Valgeirsdóttir formaður las ársskýrslu deildarinnar fyrir starfsárið 2012 fram að ársfundi í mars 2013. Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri, lagði fram reikninga fyrir starfsárið 2012-2013. Ársskýrsla og reikningar voru samþykkt.
Stjórnarkjör: Auður Valgeirsdóttir, Kristjana Ólafsdóttir, Guðrún Helga Harðardóttir og Kolbrún Jónsdóttir gáfu allar kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, ekki komu fleiri framboð og voru þær því sjálfkjörnar. Stjórnin skiptir svo með sér verkum á næsta fundi.
Önnur mál:
Lögð var fram tillaga til fjáröflunar: að deildin eigi rósettur fyrir fyrsta til fjórða sæti á sýningum sem félagsmenn hafa kost á að kaupa fyrir tíbbana sina, lendi þeir í sæti. Ákveðið að Guðrún Helga Harðardóttir og Ingibjörg Blomsterberg kanni það mál.
Helga Kolbeinsdóttir sér áfram um heimasíðu deildarinnar.
Áætluð starfsemi á nýju ári:
Ákveðið að Jóhanna Þórarinsdóttir sæi um göngur deildarinnar ásamt Helgu Kolbeinsdóttur.
Ákveðið að hafa kaffisjóð í göngum deildarinnar, þar sem fólk myndi t.d. borga 200 krónur fyrir kaffi og með.
Tillaga um að hafa dag í Gæludýr.is þar sem allir deildarmeðlimir eru boðnir velkomnir og þeir sem treysta sér mega hafa hundana með. Hægt væri að hafa kaffisölu og tombólu.
Uppskeruhátíðarnefnd stofnuð, í henni eru Guðrún Helga Harðardóttir, Kristjana Ólafsdóttir, Jóhanna Þórarinsdóttir og Ingibjörg Blómsterberg.
Ákveðið að Auður kanni möguleikann á að hafa aðra snyrtikynningu í Dekurdýrum.
Fundi slitið kl. 21:50
Boðið var uppá kaffi og með því á fundinum og fólki gafst þannig færi á að sitja áfram og spjalla.