Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar HRFÍ fyrir starfsárið 2019-2020
Ársskýrsla Tíbet spaniel deildar HRFÍ 2019-2020
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað. Heilmikil fjölgun hefur orðið í okkar tegund undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun.
Ræktunarstjórn fundaði fjórum sinnum ásamt því að nota stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál sem komu upp á milli funda.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru fjórar á starfsárinu. Alls mættu 20 Tíbet spaniel hundar í skoðun og þar af 4 í fyrsta sinn. 6 voru greindir með Districhiasis (viðsnúið augnhár) sem er arfgengt en er mælt með para á móti hreinum. Einn greindist með ellikatarakt (ekki arfgengt). Hinir voru fríir.
Sem betur fer hefur PRA eða PRA3 ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur svo að hægt sé að grípa til ráðstafana komi þessir sjúkdómar upp. Þess vegna verðum við öll að vera á varðbergi og láta augnskoða hundana okkar. Eins er nauðsynlegt að fylgjast með ef aðrir sjúkdómar koma upp. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Allir undaneldishundar sem notaðir hafa verið á Íslandi hafa verið prófaðir við PRA-3 eða eru undan PRA-3 fríum foreldrum.
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf, það er ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Allar niðurstöður og tenglar á vottorð þeirra eru komin á heimasíðu deildarinnar og er hægt að nálgast allar upplýsingar þar. Þess má geta að PRA3 er aðeins einn af PRA sjúkdómunum og eru ekki enn komin próf fyrir öðrum en PRA3.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ oftar en einu sinni með lágmarkseinkunnina „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um 2 mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun. Lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun er 20 mánaða.
Við viljum biðja ræktendur að hvetja hvolpaeigendur sína til að mæta með hundana á sýningar til að fá ræktunardóm á þá, sérstaklega sem fullorðna. Ræktunarstjórn getur ekki mælt með rakka eða tík til undaneldis nema viðkomandi hafi uppfyllt þessar kröfur.
Fjölgun
Á starfsárinu hafa fjögur got litið dagsins ljós og komist á legg, alls 13 hvolpar, 5 tíkur og 8 rakkar.
Inn-og útflutningur
Enginn Tíbet spaniel var fluttur til landsins á starfsárinu.
Sýningar
6 sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2019-2020 (júní - febrúar/mars). Af þessum 6 voru 3 alþjóðlegar og 3 NKU sýningar. Hvolpar voru sýndir á öllum sýningunum með þeim fullorðnu.
Á sumarsýningunni 8.-9. júní voru tvær sýningar. Fyrri sumarsýningin var Reykjavík Winner 2019 og NKU (norðurlandasýning) og voru 30 Tíbet spaniel hundar skráðir, þar af 2 hvolpar 6-9 mánaða. Þau sem urðu BOB og BOS fengu titilinn RW-19 fyrir framan nafnið sitt eins og undanfarin ár. BOB með NKU-stig og BOB öldungur var C.I.B.NORDCCh ISCh ISVETCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS og BOB junior með meistarastig, ungliðameistarastig og NKU-stig var RW-19 Tíbráar Tinda Nevidhya „Klukka“. Rúbín sigraði tegunahóp 9 og endaði sem 3. besti hundur sýningar. Hann varð einnig besti öldungur sýningar. Klukka var valin í 2. sæti í keppninni um besta ungliða sýningar. Tíbráar Tinda ræktunarhópur var valinn annar besti ræktunarhópur sýningar.
Seinni sýningin 9. júní var alþjóðleg og var 31 Tíbet Spaniel skráður, þar af 2 hvolpar 6-9 mánaða. BOB með CACIB var C.I.B.NORDCCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Dita“ og BOS með CACIB var ISCh Tíbráar Tinda Tiger´s Eye. Dita sigraði svo tegundahóp 9 og endaði sem 2. besti hundur sýningar. Rúbín, sem varð BOB öldungur, endaði sem besti öldungur sýningar.
Á ágústsýningunni voru tvær sýningar sem haldnar voru 24.- 25. ágúst. Fyrri sýningin var NKU sýning og voru 24 Tíbet spaniel skráðir, þar af 4 hvolpar 4-6 mánaða. Seinni sýningin var alþjóðleg og var sami fjöldi skráður og fyrri daginn. Á fyrri sýningunni var BOB, BOB öldungur með NKU-stig og öldungameistarastig, C.I.B. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS með meistarastig og NKU-stig var FagurRósar Sól „Esperanza“.
Á seinni sýningunni var BOB og BOB öldungur C.I.B. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS með CACIB var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Díta“. Rúbín var síðan valinn í 3. sæti í tegundahópi 9 á fyrri sýningunni og í 4. sæti í tegundahópi 9 á seinni sýningunni. Hann gerði sér líka lítið fyrir og var valinn 4. besti öldungur sýningar fyrri daginn og besti öldungur sýningar seinni daginn. Tíbráar Tinda ræktunahópur var valinn fjórði besti ræktunarhópur sýningar.
Nóvembersýning 23.-24. nóvember var NKU sýning og kölluð Winter Wonderland ásamt því að veita Crufts Qualification þeim hundum sem voru BOB og BOS og BOB og BOS ungliðar. Á sýninguna voru 29 Tíbet spaniel skráðir, þar af 4 hvolpar 4-6 mánaða. BOB með NKU-stig og Crufts Qualification var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Díta“. BOS með NKU-stig og Crufts Qualification var C.I.B. ISCh NLM RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy „Nói“. Díta gerði sér svo lítið fyrir og sigraði tegundahóp 9 og endaði sem 4. besti hundur sýningar. Tíbráar Tinda ræktunarhópur varð fjórði besti ræktunarhópur sýningar. BOB hvolpurinn Tíbráar Tinda Himalaya „Mína“ var valin annar besti hvolpur dagsins. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ var BOB öldungur og endaði síðan sem besti öldungur sýningar. Glæsilegt sýningaár hjá Rúbín sem var stigahæsti öldungur ársins innan HRFÍ 2019.
Fyrsta sýning ársins 2020 var haldin 29. febrúar og 1. mars. Sýningin var alþjóðleg og kölluð Norðurljósasýning. 31 Tíbet spaniel var skráður en enginn hvolpur í þetta sinn. BOB og BOS hundum voru veitt norðurljósastig ásamt hinum venjubundnu. BOB með NL-stig, CACIB og meistarastig var ISJCh Mow-Zow Halina „Milla“. BOS og BOB öldungur með NL-stig og öldungastig var ISCh Multi Ch Sommerlyst´s Lha-Wa Zi-Las. Hann gerði sér svo lítið fyrir og var valinn 2. besti öldungur sýningar. Milla var valin í 2. sæti í tegundahópi 9. Tíbráar Tinda ræktunarhópur var valinn besti ræktunarhópur dagsins.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2019
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2019 samkvæmt lista HRFÍ er tíkin C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-18 NLM Tíbráar Tinda Mudita „Dita“ en hún varð í 5. sæti yfir stigahæstu hunda HRFÍ með 20 stig. Eigandi og ræktandi er Auður Valgeirsdóttir.
C.I.B. NORDCCh ISCh RW-13-14-19 ISVETCh Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ varð í 1. sæti yfir stigahæstu öldunga HRFÍ ársins 2019 með 57 stig. Eigandi hans er Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir. Rúbín varð líka í 6.-7. sæti með 19 stig yfir stigahæstu hunda ársins. Glæsilegur árangur hjá þessum frábæra síunga hundi sem var valinn í sæti sem besti öldungur sýningar á öllum sýningum ársins 2019 nema einni.
Tíbráar Tinda ræktun Auðar Valgeirsdóttur varð í 1. sæti yfir stigahæstu ræktendur HRFÍ ársins 2019 með 65 stig. Þess má geta að hún var heiðruð af HRFÍ á fyrstu sýningu ársins 2020 ásamt þeim ræktendum sem urðu í 2. og 3. sæti.
Tíbráar Tinda ræktun var líka heiðruð á sýningunni sem stigahæsti ræktandi Royal Canin 2019.
Það er ekki auðvelt að ná inn á stigahæsta lista HRFÍ þar sem okkar tegund tilheyrir tegundahópi 9 sem er fjölmennasti hópur sýningar með yfir 20 tegundir enda komast aðeins þeir sem lenda í verðlaunasætum í tegundahópnum á listann. Að þessu sinni náðu Tíbet spaniel verðlaunasæti í tegundahópi 9 á öllum sýningum starfsársins 2019, 3 sinnum í 1. sæti, 1 sinni í 2. sæti, 1 sinni í 3. Sæti og 1 sinni í 4. sæti.
Það er frábært að sjá jafna og góða fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og frábært hve margir hvolpar hafa verið sýndir. Vonandi halda þeir áfram að mæta á sýningar í framtíðinni. Einnig er gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma og umsagnir í Sámi frá dómurum sem dæmdu þá.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
Bikarar
Núna erum við komin með farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
Deildin færir þessum aðilum bestu þakkir fyrir.
Nýir meistarar
Tveir íslenskir meistarar (ISCh), þrír ungliðameistarar (ISJCh), einn alþjóðlegur meistari (C.I.B.) og einn NORDICCh fengu staðfestingu frá HRFÍ og FCI á starfsárinu. Það eru:
Félagsstarf
Nokkrar göngur og hittingar hafa verið skipulagðir starfsárinu. Auglýsingar um hittingana /göngurnar hafa verið settar á Facebook-síðu deildarinnar með frekar stuttum fyrirvara sem hefur reynst ágætlega. Mjög erfitt hefur verið að fá nógu stórt pláss fyrir sýningarþjálfanir en Ungmennadeild stendur alltaf fyrir um þremur þjálfunum fyrir hverja sýningu og hafa deildarmeðlimir verið duglegir að nýta sér þær.
Deildin stóð fyrir snyrtikynningu 24. september 2019 undir stjórn Auðar Sifjar Sigurgeirsdóttur. Kynningin fór fram á hundasnyrtistofunni Dekurdýr. Farið var yfir almenna feldhirðu sem og sýningaumhirðu. Kærar þakkir til Dekurdýra fyrir að lána okkur aðstöðuna og Auðar Sifjar fyrir frábæra kynningu.
Kynningar og heimasíðan
Við tókum þátt í smáhundakynningum í Garðheimum, bæði í febrúar og í september 2019 og vorum með hundana okkar þar til sýnis og kynningar. Þessar kynningar hafa verið mjög skemmtilegar og tekist vel. Bæði hundar og menn hafa verið til fyrirmyndar og fólk sýnt þeim mikinn og verðskuldaðan áhuga. Kynningarbæklingurinn okkar var uppfærður og betrumbættur. Royal Canin styrkti okkur aftur með þennan glæsilega bækling. Virkilega flott kynning fyrir smáhundana okkar innan HRFÍ. Hjartans þakkir til allra sem komu með dásamlegu Tíbbana sína á kynninguna. Þessar kynningar hafa meðal annars orðið til þess að auka áhuga og eftirspurn eftir tegundinni okkar. Vegna Covid-19 var ekki haldin kynning í mars.
Við höfum haldið úti Facebook-síðu fyrir okkar tegund undir heitinu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ“. Þar höfum við sett inn allar fréttir og uppákomur sem tilheyra okkar tegund. Einnig er önnur Facebook-síða (svokölluð „like-síða“) sem tengd er við heimasíðuna. Sú síða heitir „Tíbet spanieldeild HRFÍ“.
Heimasíðan okkar hefur verið undir stjórn Helgu Kolbeinsdóttur heimasíðustjóra og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjónar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiðum okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er.
8. júní 2020
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
Auður Valgeirsdóttir, formaður.
Ræktunarstjórn 2019-2020:
Auður Valgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Blomsterberg, ritari
Kolbrún Jónsdóttir, meðstjórnandi
Guðrún Helga Harðardóttir, meðstjórnandi
Starfsnefnd:
Steinunn Þórisdóttir sem stuðningur við stjórn í hinum ýmsu málum
Heimasíðustjóri:
Helga Kolbeinsdóttir

- Þann 15. maí 2019 fæddust 5 hvolpar, 4 rakkar og 1 tík. Foreldrar eru C.I.B. ISCh DKCh Demetríu Bruce og Sommerlyst´s Yoi Khe-San. Ræktandi er Guðrún Helga Harðardóttir, Demetríu ræktun.
- Þann 30. ágúst 2019 fæddust 4 hvolpar, 1 rakki og 3 tíkur. Foreldrar eru Frostrósar Hrafna og Kris Kris Tibetan Lhama. Ræktandi er Kristín Anna Toft Jónsdóttir, Sóldaggar ræktun.
- Þann 2. nóvember 2019 fæddust 3 hvolpar, 2 rakkar og 1 tík. Foreldrar eru Chamiilon´s Gold Jewel og ISCh ISJCh Tíbráar Tinda Karuna. Ræktandi er Helga Kolbeinsdóttir, Sedalia´s ræktun.
- Þann 18. nóvember fæddist 1 hvolpur, rakki. Foreldrar eru C.I.B. NORDCCh ISCh ISVetCh RW-13-14-19. Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner og Chamiilon´s I Believe In You. Ræktandi er Auður Valgeirsdóttir, Tíbráar Tinda ræktun.
Inn-og útflutningur
Enginn Tíbet spaniel var fluttur til landsins á starfsárinu.
Sýningar
6 sýningar, fyrir allar tegundir, voru haldnar á starfsárinu 2019-2020 (júní - febrúar/mars). Af þessum 6 voru 3 alþjóðlegar og 3 NKU sýningar. Hvolpar voru sýndir á öllum sýningunum með þeim fullorðnu.
Á sumarsýningunni 8.-9. júní voru tvær sýningar. Fyrri sumarsýningin var Reykjavík Winner 2019 og NKU (norðurlandasýning) og voru 30 Tíbet spaniel hundar skráðir, þar af 2 hvolpar 6-9 mánaða. Þau sem urðu BOB og BOS fengu titilinn RW-19 fyrir framan nafnið sitt eins og undanfarin ár. BOB með NKU-stig og BOB öldungur var C.I.B.NORDCCh ISCh ISVETCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS og BOB junior með meistarastig, ungliðameistarastig og NKU-stig var RW-19 Tíbráar Tinda Nevidhya „Klukka“. Rúbín sigraði tegunahóp 9 og endaði sem 3. besti hundur sýningar. Hann varð einnig besti öldungur sýningar. Klukka var valin í 2. sæti í keppninni um besta ungliða sýningar. Tíbráar Tinda ræktunarhópur var valinn annar besti ræktunarhópur sýningar.
Seinni sýningin 9. júní var alþjóðleg og var 31 Tíbet Spaniel skráður, þar af 2 hvolpar 6-9 mánaða. BOB með CACIB var C.I.B.NORDCCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Dita“ og BOS með CACIB var ISCh Tíbráar Tinda Tiger´s Eye. Dita sigraði svo tegundahóp 9 og endaði sem 2. besti hundur sýningar. Rúbín, sem varð BOB öldungur, endaði sem besti öldungur sýningar.
Á ágústsýningunni voru tvær sýningar sem haldnar voru 24.- 25. ágúst. Fyrri sýningin var NKU sýning og voru 24 Tíbet spaniel skráðir, þar af 4 hvolpar 4-6 mánaða. Seinni sýningin var alþjóðleg og var sami fjöldi skráður og fyrri daginn. Á fyrri sýningunni var BOB, BOB öldungur með NKU-stig og öldungameistarastig, C.I.B. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS með meistarastig og NKU-stig var FagurRósar Sól „Esperanza“.
Á seinni sýningunni var BOB og BOB öldungur C.I.B. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“. BOS með CACIB var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Díta“. Rúbín var síðan valinn í 3. sæti í tegundahópi 9 á fyrri sýningunni og í 4. sæti í tegundahópi 9 á seinni sýningunni. Hann gerði sér líka lítið fyrir og var valinn 4. besti öldungur sýningar fyrri daginn og besti öldungur sýningar seinni daginn. Tíbráar Tinda ræktunahópur var valinn fjórði besti ræktunarhópur sýningar.
Nóvembersýning 23.-24. nóvember var NKU sýning og kölluð Winter Wonderland ásamt því að veita Crufts Qualification þeim hundum sem voru BOB og BOS og BOB og BOS ungliðar. Á sýninguna voru 29 Tíbet spaniel skráðir, þar af 4 hvolpar 4-6 mánaða. BOB með NKU-stig og Crufts Qualification var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita „Díta“. BOS með NKU-stig og Crufts Qualification var C.I.B. ISCh NLM RW-16 Tíbráar Tinda Blue Poppy „Nói“. Díta gerði sér svo lítið fyrir og sigraði tegundahóp 9 og endaði sem 4. besti hundur sýningar. Tíbráar Tinda ræktunarhópur varð fjórði besti ræktunarhópur sýningar. BOB hvolpurinn Tíbráar Tinda Himalaya „Mína“ var valin annar besti hvolpur dagsins. NORDICCh ISVETCh ISCh RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ var BOB öldungur og endaði síðan sem besti öldungur sýningar. Glæsilegt sýningaár hjá Rúbín sem var stigahæsti öldungur ársins innan HRFÍ 2019.
Fyrsta sýning ársins 2020 var haldin 29. febrúar og 1. mars. Sýningin var alþjóðleg og kölluð Norðurljósasýning. 31 Tíbet spaniel var skráður en enginn hvolpur í þetta sinn. BOB og BOS hundum voru veitt norðurljósastig ásamt hinum venjubundnu. BOB með NL-stig, CACIB og meistarastig var ISJCh Mow-Zow Halina „Milla“. BOS og BOB öldungur með NL-stig og öldungastig var ISCh Multi Ch Sommerlyst´s Lha-Wa Zi-Las. Hann gerði sér svo lítið fyrir og var valinn 2. besti öldungur sýningar. Milla var valin í 2. sæti í tegundahópi 9. Tíbráar Tinda ræktunarhópur var valinn besti ræktunarhópur dagsins.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2019
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2019 samkvæmt lista HRFÍ er tíkin C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-18 NLM Tíbráar Tinda Mudita „Dita“ en hún varð í 5. sæti yfir stigahæstu hunda HRFÍ með 20 stig. Eigandi og ræktandi er Auður Valgeirsdóttir.
C.I.B. NORDCCh ISCh RW-13-14-19 ISVETCh Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ varð í 1. sæti yfir stigahæstu öldunga HRFÍ ársins 2019 með 57 stig. Eigandi hans er Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir. Rúbín varð líka í 6.-7. sæti með 19 stig yfir stigahæstu hunda ársins. Glæsilegur árangur hjá þessum frábæra síunga hundi sem var valinn í sæti sem besti öldungur sýningar á öllum sýningum ársins 2019 nema einni.
Tíbráar Tinda ræktun Auðar Valgeirsdóttur varð í 1. sæti yfir stigahæstu ræktendur HRFÍ ársins 2019 með 65 stig. Þess má geta að hún var heiðruð af HRFÍ á fyrstu sýningu ársins 2020 ásamt þeim ræktendum sem urðu í 2. og 3. sæti.
Tíbráar Tinda ræktun var líka heiðruð á sýningunni sem stigahæsti ræktandi Royal Canin 2019.
Það er ekki auðvelt að ná inn á stigahæsta lista HRFÍ þar sem okkar tegund tilheyrir tegundahópi 9 sem er fjölmennasti hópur sýningar með yfir 20 tegundir enda komast aðeins þeir sem lenda í verðlaunasætum í tegundahópnum á listann. Að þessu sinni náðu Tíbet spaniel verðlaunasæti í tegundahópi 9 á öllum sýningum starfsársins 2019, 3 sinnum í 1. sæti, 1 sinni í 2. sæti, 1 sinni í 3. Sæti og 1 sinni í 4. sæti.
Það er frábært að sjá jafna og góða fjölgun skráninga á sýningar hjá okkar tegund á starfsárinu og frábært hve margir hvolpar hafa verið sýndir. Vonandi halda þeir áfram að mæta á sýningar í framtíðinni. Einnig er gaman að sjá hve vel okkar tegund hefur gengið á sýningunum og fengið frábæra dóma og umsagnir í Sámi frá dómurum sem dæmdu þá.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
Bikarar
Núna erum við komin með farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
- Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gaf farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
- Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á júní/júlí sýningu (sumarsýningu)
- Tíbet spaniel deildin gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á Reykjavíkur Winner sumarsýningu.
- FagurRósar ræktun (Ingibjörg Blomsterberg) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á alþjóðlegu sumarsýninguna.
- Tölvutraust ehf (Guðrún Helga Harðardóttir og Stefán Þórarinsson) gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
- Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gaf farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
Deildin færir þessum aðilum bestu þakkir fyrir.
Nýir meistarar
Tveir íslenskir meistarar (ISCh), þrír ungliðameistarar (ISJCh), einn alþjóðlegur meistari (C.I.B.) og einn NORDICCh fengu staðfestingu frá HRFÍ og FCI á starfsárinu. Það eru:
- ISJCh Sedalia´s Peace on Earth „Sóley“. Eigandi og ræktandi Helga Kolbeinsdóttir.
- ISJCh Tíbráar Tinda Alokhe „Fjóla“. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
- ISJCh Tíbráar Tinda Padhyam „Qi“. Eigandi Guðrún Karlsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
- ISCh FagurRósar Sól „Esperanza“. Eigandi Kristjana Ólafsdóttir. Ræktandi Ingibjörg Blomsterberg.
- ISCh ISJCh RW-18 Demetríu Han Solo. Eigandi Anna María Garðarsdóttir. Ræktandi Guðrún Helga Harðardóttir.
- NORDICCh VETCh C.I.B. ISCh, RW-13-14-19 Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner. Eigandi Kolbrún Jónsdóttir. Ræktandi Auður Valgeirsdóttir.
- C.I.B. NORDICCh, ISCh ISJCh NLM RW-18 Tíbráar Tinda Mudita. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir.