Fundargerð Tibet Spanieldeildar HRFÍ
Þriðjudaginn 24. febrúnar 2015
Silfri, Hafnarfirði.
Fundur nr. 4 frá ársfundi.
Mættar voru Auður Valgeirsdóttir formaður, Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri, Kolbrún Jónsdóttir, ritari og Ingibjörg Blomsterberg meðstjórandi og Guðrun Helga Harðardóttir
meðstjórandi. Formaður Auður Valgeirsdóttir setti fundinn og fór yfir síðustu fundargerð.
Got: Þann 29. jan fæddist einn hvolpur undan C.I.B. Tíbráar Tinda Tíbet,s Pride N Glory. IS13866/09 og Lililein Yankee Doodle. IS19540/14 Ræktandi er Auður Valgeirsdottir
Tíbráar Tinda ræktun.
Bikarar: v. febrúarsýningar 2015 gaf Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) eignarbikara bæði BOB og BOS fyrir besta hund og bestu tík tegundar.
Guðrun Helga Harðardóttir sagðist vera tilbúin að gefa bikara fyrir næstu sýningu, Kristjana Ólafsdóttir sagðist geta gefið bikara fyrir einhverja sýninguna á árinu 2015.
PRA3: Kominn er listi yfir alla hunda á norðurlöndunum sem eru DNA testaðir af PRA3 augnsjúkdóminum og eru fríir, íslenskir hundar eru líka á listanum. Per Ole Stelman,
frá Finnlandi tók listann saman.
Sýningar: Á febrúarsýningunni var þátttaka Tibetan spaniel hunda mjög góð, og voru 20 hundar sýndir. 10 rakkar og 10 tíkur, mesti fjöldi sem hefur verir í all mörg ár.
Paranir: Til stendur að para í júli þau Tíbráar Tinda Cherry Blossom, IS16605/11 og Lililein Yankee Doodle, (Topaz) IS19540/14.
Önnur mál: Tekið var þátt í smáhundakynningu í Garðheimum, og gekk vel að manna báða dagana og og voru Tibbarnir sem þar voru með eigendum sínum
allir til fyrirmyndar og tegundinni tl sóma.
Rætt var um ársfund sem haldinn veður 7. apríl í húsakynnum HRFÍ, þreifað á væntalegu stjórnarkjöri.
Til umræðu kom aldur á tíkum v. pörunar hvort sækja ætti um undanþágu um að aldur tíka verði lækkaður.
Fundi slitið kl. 20.