Kæru tíbbaeigendur!
Næsta ganga Tíbet Spanieldeildarinnar verður þriðjudaginn 23. apríl næstkomand. Við ætlum að hittast hjá Nesti í Fossvogi, (N1/Subway sem stendur við Kringlumýrabraut) kl 19:00. Við ætlum í taumgöngu í þetta sinn, en við hvetjum fólk til að vera með tíbbana í stuttum taum (ekki flexi) og minnum alla á að koma með skítapoka. Stjórnin mun bjóða uppá Kakó og með því fyrir 200 kr. per fullorðinn. Peningurinn sem safnast mun svo fara í viðburðarsjóð deildarinnar :) Ef einhver lendir í vandræðum með að finna okkur, má hringja í mig í síma 6947415. Vonumst til að sjá sem flesta :) Ársskýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2012-2013 er komin á síðuna auk fundargerðar frá ársfundinum á þriðjudag. Endilega kynnið ykkur innihald skýrslunnar.
Kveða, stjórnin Ársfundur Tíbet spaniel deildar HRFÍ verður haldinn þriðjudaginn 9. apríl kl. 20:00 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. 2.hæð. Hæhó!
Tíbet spaniel deild HRFÍ ætlar að taka þátt í Smáhundadögum Garðheima helgina 9-10 febrúar. Við óskum eftir aðstoð ykkar til að kynna okkar frábæru tegund og deildina okkar. Óskað er eftir viðveru í básnum með hundana í ca. 2 klst. Hundarnir þurfa að vera sáttir við að fólk á öllum aldri klappi þeim. Endilega látið okkur vita á síðunni okkar á facebook eða með tölvupósti á tibbadeild@gmail.com ef þið sjáið ykkur fært að mæta með hundana ykkar í Garðheima og takið fram hvaða tími myndi henta ykkur best. Mörg spennandi tilboð á vörum eru í boði í Garðheimum þessa helgi pg þeir sem aðstoða okkur á básnum fá 20% aflslátt af gæludýravörum í búðinni. Endilega hjálpumst að við að kynna okkar æðislegu Tíbba ♥ -- Með kveðju, stjórn Tíbet Spanieldeildar HRFÍ Facebook síðan okkar Stjórn deildarinnar hefur ákveðið að halda uppskeruhátíð/ árshátíð þann 24. nóvember n.k. þar sem m.a. verður heiðraður stigahæsti Tíbet spaniel hundur ársins á sýningum HRFÍ. Planið er að borða saman og hafa það skemmtilegt og hafa happdrætti með góðum vinningum :o) Skráning á netfangið tibra@heimsnet.is eða í síma 557-5622 eftir kl. 13.00 alla daga. Gott er að vita sem fyrst hverjir hafa áhuga að koma og eiga góða kvöldstund saman.
Laugavegsganga HRFÍ Laugardaginn 6. október mun Hundaræktarfélag Íslands standa fyrir árlegri göngu með hunda niður Laugaveginn í Reykjavík. Lagt verður af stað frá Hlemmi kl. 13. Skólahljómsveit Kópavogs mun svo slá taktinn með okkur. Gangan mun svo enda í Hljómskálagarðinum. Stjórn Tibet Spaniel deildarinnar hvetur félgssmenn sýna til að mæta og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði. Stjórn Tibet Spaniel deildar innan HRFÍ. Það eru komnar myndir á síðuna frá básnum okkar á smáhundakynningunni í Garðheimum um helgina. Stjórnin vill þakka þeim sem komu með tíbbana sína og kynntu okkar frábæru tegund. |
VelkominVelkomin á heimasíðu Tíbet Spanieldeildarinnar. Hér finnurðu allskyns fróðleik og fréttir af tegundinni. Færslur
December 2023
Flokkar
All
|