Síðan er uppfærð með fréttum af hvolpasýningu HRFÍ í janúar og alþjóðlegri sýningu félagsins í febrúar síðastliðnum. Sjá Sýningar - Sýningarfréttir. Einnig eru komnar inn myndir á Myndasíðuna okkar, undir Febrúarsýning 2014. Einnig er komin á síðuna ársskýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2013-2014 sem er bæði fróðleg og gagnleg fyrir tíbbaeigendur að kynna sér. Sjá Deildin - Ársskýrslur - Ársskýrsla Stjórnar 2013-2014. Fyrir hönd stjórnar, Helga Kolbeinsdóttir, vefsíðustjóri Kæru tíbbaeigendur! Ársfundur Tíbet spaniel deildar HRFÍ verður haldinn miðvikudaginn 12. mars kl. 20:00 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. 2.hæð. Dagskrá : Venjuleg ársfundarstörf. Kaffiveitingar Ræktunarstjórn er skipuð fimm félagsmönnum sem kosnir eru til tveggja ára í senn. Í ár er kosið í eitt laust sæti. Kjörgengi og kosningarétt hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og eru skuldlausir við HRFÍ það ár sem ársfundur er haldinn. Einungis þeir sem hafa verið félagsmenn í HRFÍ í tvö ár geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeilda. Með kveðju. F.h. stjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ. Auður Valgeirsdóttir formaður. |
VelkominVelkomin á heimasíðu Tíbet Spanieldeildarinnar. Hér finnurðu allskyns fróðleik og fréttir af tegundinni. Færslur
February 2024
Flokkar
All
|