Tekið af vef Hundaræktarfélags Íslands. Alþjóðleg hundasýning HRFÍ Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 17. - 18. nóvember 2012. Skráningafresti lýkur föstudaginn 19. október 2012. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. Dómarar að þessu sinni eru: Tapio Eerola (Finnland), Natalja Nekrosiene (Litháen), Anna Brankovich (Serbía), Zoran Brankovich (Serbia), John Walsh (Írland), Ole Staunskjær (Danmörk). Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu. Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst. Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir. Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 6. október 2012. Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
1 Comment
|
SýningarfréttirHér munum við setja inn úrslit sýninga HRFÍ hverju sinni. Sarpur
March 2014
Flokkar |