Ársfundur Tíbet Spanieldeildar HRFÍ verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2025 kl 20:00 í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands, Melabraut 17, 220 Hafnarfirði.
Dagskrá : Venjuleg ársfundarstörf Léttar kaffiveitingar Verið öll velkomin! Með bestu kveðju, Stjórn Tíbet spaniel deildar HRFÍ. ATH! III Stjórn ræktunardeildar 1. Stjórn ræktunardeildar skal skipuð þremur eða fimm félagsmönnum. Eigi að fækka stjórnarmönnum eða fjölga þeim, skal slíkt koma fram í fundarboði og síðan kosið um tillögu að fjölgun eða fækkun á ársfundi deildarinnar áður en kosið er til stjórnar. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn ræktunardeilda til tveggja ára í senn. Einungis þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn, geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar. 2. Kosning í stjórn ræktunardeildar fer fram á ársfundi deildarinnar ár hvert. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. |
VelkominVelkomin á heimasíðu Tíbet Spanieldeildarinnar. Hér finnurðu allskyns fróðleik og fréttir af tegundinni. Færslur
March 2025
Flokkar
All
|