Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar fyrir starfsárið 2024-2025
Ársskýrsla Tíbet spaniel deildar HRFÍ 2024-2025
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað.
Stjórn hélt einn formlegan stjórnarfund á árinu en notaði stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru haldnar í júní, október og janúar/febrúar á starfsárinu. Í þessar augnskoðanir mættu sjö tíbbar og fengu sex athugasemd. Tveir þeirra greindust með Distichariasis/Ektopiske Ciller, þrír með Entropion/Trichiasis og einn greindist með Ektropion/Makroblefaron. Allir þessir augnsjúkdómar eru arfgengir og er mælt með að para þá hunda sem bera þá með hundum sem eru fríir af sjúkdómunum.
Sem betur fer hafa PRA eða PRA3 ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi hingað til en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur svo að hægt sé að grípa til ráðstafana komi þessir og aðrir augnsjúkdómar upp. Þess vegna verðum við öll að vera á varðbergi og láta augnskoða hundana okkar. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 25 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Allir undaneldishundar sem notaðir hafa verið á Íslandi undanfarin ár hafa verið prófaðir við PRA-3 eða eru undan PRA-3 fríum foreldrum eða forfeðrum.
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf, það er ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Niðurstöður og tenglar á vottorð þeirra eru flest komin á heimasíðu deildarinnar.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ, oftar en einu sinni, með lágmarkseinkunnina „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 25 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um tveggja mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun. Lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun er 20 mánaða.
Á starfsárinu hafa fjögur got verið ættbókarfærð hjá HRFÍ.
2. janúar 2024 fæddust þrír rakkar og ein tík hjá Ceremia´s ræktun undan Sedalia´s Royalty og Tíbráar Tinda Dhupe. Ræktandi: Hildur María Jónsdóttir.
4. janúar 2024 fæddust þrír rakkar og ein tík hjá Demetríu ræktun undan C.I.B. DKCH ISCH Demetríu Bruce og Mullagh Witchy Women. Ræktandi: Guðrún Helga Harðardóttir og Rebekka Einarsdóttir.
10. febrúar 2024 fæddust einn rakki og þrjár tíkur hjá Tíbráar Tinda ræktun undan C.I.B.-J ISCH Tashi-Gong Legend og Tíbráar Tinda Körmu. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
22. nóvember 2024 fæddust fjórir rakkar og ein tík undan ISJCH ISCH NORDICCH ISJW23 ISW24 Tíbráar Tinda Zigsa og ISJCH ISCH NORDICCH C.I.B. ISW22/23 Tíbráar Tinda Sakyu. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir.
Óskum við ræktendum og eigendum til hamingju með hvolpana sína.
Inn- og útflutningur
Tveir Tíbbar voru fluttir inn á starfsárinu.
Frá Póllandi kom rakkinn You´ll Never Walk Alone Livolly. Ræktandi: Magdalena Andrusiewicz. Eigandi: Sigurbjörg Eva Sigurðardóttir.
Frá Finnlandi kom tíkin Tashi-Gong All In. Ræktandi: Katriina Huhtinen. Eigandi: Hildur María Jónsdóttir.
Sýningar
Sex sýningar (meistarastigs-, alþjóðlegar- og Nordic) sýningar voru haldnar á starfsárinu ásamt tveimur hvolpasýningum. Góð skráning var í tegundinni okkar á allar sýningar starfsársins.
Alþjóðleg sýning var haldin 2. mars 2024. Skráðir voru 28 tíbbar og var dómari Inga Siil frá Eistlandi. BOB var Nando Astarte Gold. Eigandi: Guðrún Helga Harðardóttir. Ræktandi: Peter Balogh. BOS var C.I.B. ISCH ISVETCh Falkiaros Just A Jewel For You. Eigandi: Ingibjörg Blomsterberg. Ræktandi: Kristin Bøe.
Nordic-sýning var haldin 8. júní 2024. Skráðir voru 34 tíbbar og var dómari Kaisa Gold frá Finnlandi. BOB var C.I.B. C.I.B.-V NORDICCh NORDICVETCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var NORDICCh ISCh FagurRósar Sól. Eigandi: Kristjana Ólafsdóttir. Ræktandi: Ingibjörg Blomsterberg.
Nordic-sýning var haldin 10. ágúst 2024. Skráðir voru 26 tíbbar og var dómari Myles Leonard frá Írlandi. BOB var Tíbráar Tinda Alokhe. Eigandi: Auður Valgeirsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var C.I.B. C.I.B.-V NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Alþjóðleg sýning var haldin 11. ágúst 2024. Skráðir voru 25 tíbbar og var dómari John Jakobsen frá Noregi. BOB var C.I.B. C.I.B.-V NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var ISJCh Sedalia’s Angel of Mine. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir.
Alþjóðleg sýning var haldin 28. september 2024. Skráðir voru 27 tíbbar og var dómari Ágústa Pétursdóttir frá Íslandi. BOB var C.I.B. C.I.B.-V NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var CIB ISJCh RW21 ISW22-23 var Tíbráar Tinda Sakya. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Valgeirsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Winter Wonderland Nordic og ISW-24 sýning var haldin 23. nóvember 2024. Skráðir voru 28 tíbbar og var dómari Bo Skalin frá Svíþjóð. BOB var ISJCh ISCh NORDICCh ISJW23 ISW24 Tíbráar Tinda Zigsa. Eigendur og ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Sigurgeir Þráinn Jónsson. BOS var C.I.B. ISVETCH ISCH ISW24 ISVW24 Tíbráar Tinda Pink Lotus. Eigandi: Auður Valgeirsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Sigurgeir Þráinn Jónsson.
Alþjóðleg sýning var haldin 1. mars 2025. Skráðir voru 22 tíbbar og var dómari Jarmo Hilpinen frá Finnlandi. BOB var Nando Astarte Gold. Eigandi: Guðrún Helga Harðardóttir. Ræktandi: Peter Balogh. BOS var ISJCh Sedalia’s Angel of Mine. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir
Tvær hvolpasýningar voru haldnar á starfsárinu.
Dómari á hvolpasýningunni 27. janúar 2024 var Erna Sigríður Ómarsdóttir og voru 2 skráð í ungviðaflokk og 1 í hvolpaflokk. Besta ungviði í tegund var Sedalia’s Angel of Mine. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir. Besti hvolpur tegundar var Tíbráar Tinda Sonam. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Sigurgeir Jónsson.
Dómari á hvolpasýningunni 27. Október 2024 var Anna Guðjónsóttir og voru 2 hvolpar skráðir. Besti hvolpur tegundar var Tíbráar Tinda Dawa. Eigandi: Dagný Eir Ámundadóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Sigurgeir Jónsson.
Nánari úrslit sýninganna má sjá á www.hundavefur.is
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda þessara flottu hunda.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2024
Eftir frábært sýningarár í tegundinni okkar er stigahæsti hundur tegundar:
C.I.B. C.I.B.-V NORDICCh NORDICVETCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy.
Nói er er jafnframt stigahæsti öldungur tegundar.
Stigahæsti Tíbet spaniel deildarinnar af gagnstæðu kyni er C.I.B. C.I.B.-V* ISVETCh.ISCh. NLW-15, RW-13,14,15,16 Tíbráar Tinda Pink Lotus.
Lotus er jafnframt stigahæsta öldungatík í tegundinni.
Stigahæsti ungliði er ISJCh NORDICChJCh ISJW24 You’ll Never Walk Alone Livolly. Ræktandi Magdalena Andrusiewicz, eigandi: Sigurbjörg Eva Sigurðardóttir.
Stigahæsta ungliðatík er ISJCh Sedalia’s Angel of Mine. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Tíbráar Tinda ræktun varð í 3. sæti yfir stigahæstu ræktendur ársins 2024 hjá HRFÍ. Ræktendur eru Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Á starfsárinu kom Helga Kolbeinsdóttir inn í Tíbráar Tinda ræktunina í stað Sigurgeirs Þráins Jónssonar.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
Bikarar
Farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
Samstarfssamningur við Petmark
Stjórn Tíbet spanieldeildar hefur undirritað samstarfssamning við Petmark. Með samstarfinu fær deildin að njóta ýmissa fríðinda. Meðal annars vinninga fyrir bingó, verðlaun á deildarsýningar og fyrir stigahæstu hunda ársins.
Með þessum samstarfssamningi stefnum við á að efla félagsstarfið á næsta starfsári og gera eitthvað ennþá meira skemmtilegt saman.
Deildarstarf og heimasíðan
Helgarnar 16. og 17. mars tók deildin þátt í Smáhundakynningum Garðheima. Þökkum við viðburða- og skemmtinefnd fyrir skipulagningu og öllum þeim sem tóku þátt í að kynna okkar frábæru tegund.
Tíbba-eigendur gengu saman í kringum Hvaleyrarvatn 6. október sl. og var gangan skipulögð af viðburða- og skemmtinefnd.
Deildin stóð fyrir skemmtilegu jólaballi 4. desember sl. í húsnæði HRFÍ. Frábær mæting var á jólaballið en yfir 20 tvífætlingar og enn fleiri ferfætlingar létu sjá sig og bauð deildin upp á léttar veitingar og þakkar stjórn aðilum úr viðburða-og skemmtinefnd sem lögðu hönd á plóg.
Deildin stóð fyrir sýningarþjálfunum fyrir flestar sýningar starfsársins og var mæting almennt góð.
Deildin heldur úti tveimur síðum á Facebook. Önnur undir heitinu Tíbet spanieldeild HRFÍ og hin Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ. Helga og Auður Sif hafa séð um að koma upplýsingum inn á þessar síður.
Heimasíða deildarinnar hefur verið undir stjórn Helgu Kolbeinsdóttur, heimasíðustjóra og kann deildin henni bestu þakkir fyrir.
Á döfinni
Helgina 22.-23. mars fer fram Smáhundakynning í Garðheimum og stefnir deildin á þátttöku. Skipulagning er í höndum viðburða- og skemmtinefndar.
Deildin mun á næstunni standa fyrir heiðrun stigahæstu Tíbet spanielhundanna á sýningum ársins, hundapartýi og bingói. Viðburðurinn verður auglýstur á næstunni.
Stefnt er að því að hafa snyrtinámskeið fyrir Tíbbaeigendur í Dekurdýrum fljótlega eftir páska.
Deildin fagnar 30 ára afmæli á árinu og sótti stjórn um afmælissýningu þar sem öllum tíbetsku tegundum (Lhasa apso, Shih tzu og Tíbet terrier) á Íslandi verður boðið að vera með. Sýningin mun fara fram laugardaginn 3. maí næstkomandi í húsnæði HRFÍ og verður dómarinn Lena Persson frá Svíþjóð.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjórnar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiðum okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er. Við hlökkum til næsta starfsárs!
19. mars 2025.
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
Auður Sif Sigurgeirsdóttir, formaður
Stjórn deildarinnar 2024-2025 skipuðu:
Auður Sif Sigurgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Helga Kolbeinsdóttir, ritari
Auður Valgeirsdóttir, meðstjórnandi
Hildur María Jónsdóttir, meðstjórnandi
Heimasíðustjóri:
Helga Kolbeinsdóttir

- Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
- Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á júní/júlí sýningu (sumarsýningu)
- Tíbet spaniel deildin gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á Reykjavíkur Winner sumarsýningu.
- FagurRósar ræktun (Ingibjörg Blomsterberg) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á alþjóðlegu sumarsýninguna.
- Sedalia’s ræktun (Helga Kolbeinsdóttir) gefur farandbikar fyrir BOB og BOS á haustsýningu.
- Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.