Ársskýrsla Tíbet Spanieldeildar fyrir starfsárið 2023-2024
Ársskýrsla Tíbet spaniel deildar HRFÍ 2023-2024
Aðalmarkmið ræktunarstjórnar er að standa vörð um ræktunarmarkmið og heilbrigði tegundarinnar og vera ráðgefandi aðili fyrir ræktendur sé þess óskað.
Ræktunarstjórn hélt einn formlegan stjórnarfund á árinu en notaði stjórnarspjallið á Facebook þar sem rædd voru og ákveðin hin ýmsu mál.
Augnskoðun
Augnskoðanir voru haldnar í júní, október og febrúar á starfsárinu. Í þessar augnskoðanir mættu 17 tíbbar. 10 fengu athugasemd, þ.á.m. 5 sem greindust með Distichariasis/Ektopiske Ciller sem er arfgengt og mælt með að para með fríum, 1 greindist með PPM (Pers. Pupilmembran) sem er arfgengt og mælt með að para með fríum, 3 greindust með Entropion/Trichiasis sem er arfgengt og mælt að para með fríum, 1 greindist með cataract (ekki arfgengt).
Sem betur fer hafa PRA eða PRA3 ekki greinst í neinum Tíbet spaniel á Íslandi hingað til en mjög mikilvægt er að skoða sem flesta hunda til að sjá hvernig stofninn stendur svo að hægt sé að grípa til ráðstafana komi þessir og aðrir augnsjúkdómar upp. Þess vegna verðum við öll að vera á varðbergi og láta augnskoða hundana okkar. Eins og flestir vita verða undaneldisdýr að vera með gild augnvottorð ef rækta á undan þeim. Augnvottorðið má ekki vera eldra en 25 mánaða við pörun - annars er ekki hægt að ættbókarfæra gotið.
DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3
Frá 8. júlí 2013 var DNA próf vegna augnsjúkdómsins PRA3 tilbúið eftir margra ára rannsóknir hjá AHT í Bretlandi. Allir undaneldishundar sem notaðir hafa verið á Íslandi undanfarin ár hafa verið prófaðir við PRA-3 eða eru undan PRA-3 fríum foreldrum eða forfeðrum.
Allir reyndust þeir fríir og þar af leiðandi þurfa afkvæmi þeirra ekki að fara í próf, það er ef báðir foreldrar þeirra eru fríir af sjúkdómnum. Niðurstöður og tenglar á vottorð þeirra eru flest komin á heimasíðu deildarinnar.
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar til undaneldis eru þær að ræktunardýrin séu ræktunardæmd á sýningum HRFÍ eða öðrum viðurkenndum af HRFÍ, oftar en einu sinni, með lágmarkseinkunnina „very good“. Einnig verða undaneldisdýrin að vera með gild augnskoðunarvottorð (viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má ekki vera eldra en 25 mánaða við pörun.
Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum um val á undaneldishundum frá ræktunarstjórn þarf skrifleg beiðni þess efnis að berast með um tveggja mánaða fyrirvara til að öruggt sé að hún verði tekin fyrir og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun. Lágmarksaldur Tíbet spaniel tíka við fyrstu pörun er 20 mánaða.
Á starfsárinu hafa tvö got verið ættbókarfærð hjá HRFÍ en vitað er um fjögur got, þegar þetta er ritað, sem verða ættbókarfærð á næstunni.
9. maí 2023 fæddust þrjár tíkur og einn rakki hjá Tíbráar Tinda ræktun undan Brill Padme Ralph Lauren og ISCH ISJCH Mow-Zow Halina. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
28. júlí 2023 fæddust þrír rakkar og tvær tíkur hjá Sedalia´s ræktun undan Tashi-Gong Legend og ISJCH Sedalia´s Peace on Earth. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir.
Óskum við ræktendum og eigendum til hamingju með hvolpana sína.
Inn- og útflutningur
Tveir rakkar voru fluttir inn á starfsárinu og ein tík flutt til Noregs.
Frá Danmörku kom rakkinn, Sudurhjara Ds' Jermaine Jackson. Eigandi: Alexandra Björg Eyþórsdóttir. Ræktendur: Linda G. Lorange og Egill Hilmarsson.
Frá Póllandi kom rakkinn, Nando Astarte Gold. Ræktandi: Peter Balogh.
Sedalia´s Angel of Light var flutt til Noregs. Eigandi: Bente Lund. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir.
Sýningar
Fimm sýningar (meistarastigs-, alþjóðlegar- og Nordic) sýningar voru haldnar á starfsárinu ásamt tveimur hvolpasýningum og auk þess er gaman að segja frá því að Tíbet spanieldeild stóð fyrir deildarsýningu í samstarfi við Chihuahuadeild HRFÍ 20. janúar sl.
Góð skráning var í tegundinni okkar á allar sýningar starfsársins.
Nordic-sýning var haldin 10. júní. Skráðir voru 23 tíbbar og var dómari Anita Duggan frá Írlandi. BOB var C.I.B. C.I.B.-V* NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Eigandi: Helga Kolbeinsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var NORDICCh ISCh FagurRósar Sól. Eigandi: Kristjana Ólafsdóttir. Ræktandi: Ingibjörg Blomsterberg.
Alþjóðleg sýning var haldin 11. júní. Skráðir voru 24 tíbbar og var dómari Daníel Örn Hinriksson. BOB var C.I.B. C.I.B.-V* NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. BOS var C.I.B. ISCH ISVETCh Falkiaros Just A Jewel For You. Eigandi: Ingibjörg Blomsterberg. Ræktandi: Kristin Boe.
Nordic-sýning var haldin 12.-13. ágúst. Skráðir voru 22 tíbbar og var dómari Åke Cronander frá Svíþjóð. BOB var ISJCh RW-21 ISW22 var Tíbráar Tinda Sakya. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Valgeirsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var Tashi-Gong Legend. Eigandi: Hildur María Jónsdóttir. Ræktandi: Katriina Huhtinen.
Alþjóðleg sýning var haldin 7.-8. október. Skráðir voru 26 tíbbar og var dómari Tatjana Urek frá Slóvakíu. BOB var Sedalia´s Royalty. Eigendur: Bjarney Katrín Gunnarsdóttir og Pálmi Grímur Guðmundsson. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir. BOS var ISJCh RW-21 ISW22 var Tíbráar Tinda Sakya.
Winter Wonderland Nordic og ISW-23 sýning var haldin 25.-26. nóvember. Skráðir voru 17 tíbbar og var dómari Birgitta Svarstad frá Svíþjóð. BOB var C.I.B. C.I.B.-V* NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. BOS var ISJCh RW-21 ISW22 var Tíbráar Tinda Sakya.
Tíbet spanieldeild stóð fyrir deildarsýningu í samstarfi við Chihuahuadeild HRFÍ 20. janúar sl. og var dómari Katriina Huhtinen frá Finnlandi sem ræktar bæði Tíbba og Chihuhua. Sýningin gekk vel í alla staði og var skráningin frábær en 38 tíbbar voru skráðir til leiks. BOB var ISJCh Tíbráar Tinda Zaya. Eigandi: Hildur María Jónsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. BOS var C.I.B. C.I.B.-V* NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy. Besta ungviði tegundar var Sedalia´s Angel of Mine. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Ræktandi: Helga Kolbeinsdóttir. Besti hvolpur tegundar var Tíbráar Tinda Sonam. Eigendur: Helga Kolbeinsdóttir og Auður Valgeirsdóttir. Ræktendur: Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Þráinn Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Dýrheimar gáfu fóðurverðlaun og 18 rauðar rósir gáfu fallega blómvendi og kann deildin þeim bestu þakkir fyrir.
Tvær hvolpasýningar voru haldnar, sú fyrri 4. nóvember og seinni 27. janúar.
Dómari á hvolpasýningunni 4. nóvember var Ágústa Pétursdóttir og voru 5 tíbba-ungviði skráð til leiks. Besta ungviði tegundar var Tíbráar Tinda Sonam.
Dómari á hvolpasýningunni 27. janúar var Erna Sigríður Ómarsdóttir og voru 3 tíbba-hvolpar skráðir. Besta ungviði tegundar var Sedalia´s Angel of Mine og besti hvolpur tegundar var Tíbráar Tinda Sonam.
Nánari úrslit sýningarinnar má sjá á hundavefur.is
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda þeirra.
Stigahæsti Tíbet spaniel ársins 2023
Eftir frábært sýningarár í tegundinni okkar er stigahæsti hundur tegundar:
C.I.B. C.I.B.-V* NORDICCh ISCh ISVETCh RW-16 RW-23 NLM ISW-22-23 ISVW-22-23 Tíbráar Tinda Blue Poppy.
Nói er jafnframt stigahæsti öldungur tegundar sem og stigahæsti öldungur yfir allar tegundir HRFÍ!
Stigahæsti Tíbet spaniel deildarinnar af gagnstæðu kyni er NORDICCh ISCh ISJCh RW-21 ISW-22-23 Tíbráar Tinda Sakya.
Tíbráar Tinda ræktun varð í 1. sæti yfir sigahæstu ræktendur ársins 2023 hjá HRFÍ. Ræktendur eru Auður Valgeirsdóttir, Sigurgeir Jónsson og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Innilegar hamingjuóskir til eigenda og ræktenda.
Bikarar
Farandbikara á allar fastar sýningar ársins fyrir BOB og BOS í fullorðnum.
· Tíbráar Tinda ræktun (Auður Valgeirsdóttir) gefur farandbikar fyrir BOB og BOS á febrúarsýningu.
· Perlu-Lindar ræktun (Berglind B. Jónsdóttir) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á júní/júlí sýningu (sumarsýningu)
· Tíbet spaniel deildin gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á Reykjavíkur Winner sumarsýningu.
· FagurRósar ræktun (Ingibjörg Blomsterberg) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á alþjóðlegu sumarsýninguna.
· Tölvutraust ehf (Guðrún Helga Harðardóttir og Stefán Þórarinsson) gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á ágústsýningu (september)
· Buddha (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian) (Rannveig Rúna og Gunnar) í minningu G. Eyrúnar Gunnarsdóttur, gefur farandbikara fyrir BOB og BOS á nóvembersýningu.
Deildin færir þessum aðilum bestu þakkir fyrir.
Samstarfssamningur við Royal Canin á Íslandi
Stjórn Tíbet spanieldeildar hefur undirritað samstarfssamning við Royal Canin á Íslandi. Með samstarfinu fær deildin að njóta ýmissa fríðinda. Meðal annars afnot af húsnæði þeirra, t.d. undir eina deildarsýningu á ári, afnot af kaffihúsi, t.d. fyrir fyrirlestra eða bingó. Deildin getur líka fengið afnot af salnum á góðu verði, t.d. fyrir sýningarþjálfanir eða aðra hittinga. Samningurinn felur í sér fóðurgjafir til að nota í verðlaun fyrir heiðrun stigahæstu hunda ársins og á deildarsýningu.
Með þessum samstarfsamningi stefnum við á að efla félagsstarfið á næsta starfsári og gera eitthvað skemmtilegt saman.
Deildarstarf og heimasíðan
Miðvikudagskvöldið 24. maí fór fram heiðrun stigahæstu Tíbet Spaniel hunda ársins 2022 í Kaffihúsi Dýrheima. Allir sem komust inn á lista yfir stigahæstu Tíbba ársins 2022 voru heiðraðir með skjali frá Tíbet spanieldeildinni og fallegri rós frá 18 rauðum rósum, auk þess sem efstu sætin fengu blómvönd og fóðurpoka frá Dýrheimum. Deildin þakkar styrktaraðilum kærlega fyrir þessu flottu verðlaun.
Að aflokinni heiðrun var svo afar áhugaverður fyrirlestur um sögu og útlit Tíbet spaniel í boði tíbba-dómarans- og ræktandans Tony Moran frá Bretlandi. Deildin þakkar Tony kærlega fyrir áhugaverðan fyrirlestur. Gjald fyrir þátttöku á fyrirlestri var 1.000 krónur og rann sá peningur óskiptur til deildarinnar.
Viðburða- og skemmtinefnd deildarinnar stóð fyrir tveimur Tíbba-göngum á starfsárinu sem voru mjög vel sóttar. Önnur var í Laugardalnum en hin á Hólmsheiðinni. Stefnan er að skipuleggja enn fleiri göngur á næsta starfsári.
Deildin heldur úti tveimur síðum á Facebook. Önnur undir heitinu Tíbet spanieldeild HRFÍ og hin Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ. Helga og Auður Sif hafa séð um að koma upplýsingum inn á þessar síður.
Heimasíða deildarinnar hefur verið undir stjórn Helgu Kolbeinsdóttur, heimasíðustjóra og kann deildin henni bestu þakkir fyrir.
Þegar þetta er skrifað er ýmislegt framundan hjá deildinni, m.a. sýning HRFÍ í byrjun mars og smáhundakynning í Garðheimum.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað um það helsta á starfsárinu.
Meginverkefni ræktunarstjórnar er að standa vörð um andlegt og líkamlegt heilbrigði og ræktunarmarkmið Tíbet spaniel hunda. Við verðum öll að hafa metnað fyrir þessari frábæru tegund okkar með góðri kynningu á henni og metnaði í ræktun, öðruvísi tekst okkur ekki að ná markmiðum okkar. Einnig er gaman að efla félagsandann í deildinni með skemmtilegum viðburðum en þá verða líka allir að leggjast á eitt svo það takist því deildin er jú auðvitað bara fólkið sem í henni er. Við hlökkum til næsta starfsárs!
19. febrúar 2024.
F.h. ræktunarstjórnar Tíbet spaniel deildar HRFÍ,
_________________________________
Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Ræktunarstjórn 2023-2024:
Auður Sif Sigurgeirsdóttir, formaður
Kristjana Ólafsdóttir, gjaldkeri
Helga Kolbeinsdóttir, ritari
Auður Valgeirsdóttir, meðstjórnandi
Ingibjörg Blomsterberg, meðstjórnandi
Heimasíðustjóri:
Helga Kolbeinsdóttir